Um áætlun

Að stunda viðskipti á andlega sviðinuSýnishorn

Doing Business Supernaturally

DAY 1 OF 6

Fölsk tvískipting



Ég trúði lygi fyrstu 28 ár ævi minnar sem kristinn maður



Þetta er lygi sem er allt of algeng meðal kristinna manna og ef þú ert viðskiptafræðingur eða starfar í þeim heimi þá giska ég á að þú hafir átt í erfiðleikum með það líka.



Lof mér að útskýra...



Þegar ég gerðist fylgjandi Jesú á lokaári mínu í háskóla fékk ég einhvern veginn andlegt minnisblað þar sem á stóð að allir þeir guðræknustu og mest trúuðu... þeir sem voru hvað alvarlegastir í trú sinni... þeir eyddu öllum stundum sínum við að boða út trúnna, það má segja að þeir hafi verið í fullu starfsnámi í predikun. Þegar öllu er á botninn hvolft eru hinar frægu ævisögur, prédikanir og prédikunarstólar fullir af þeim sem "gáfu allt upp fyrir Jesú." Og enginn þeirra fór að vinna í viðskiptum (eða það virtist vera svo).



Mér fannst ég því óæðri. Og ég íhugaði að hætta í MBA náminu mínu til að fara í Biblíuháskólann. Mér fannst að ef ég héldi áfram viðskiptum væri ég alltaf annars flokks kristinn maður, sem hefði það hlutverk í kirkjunni að sitja í fjárlaganefnd eða vera einfaldlega duglegur að gefa af fjármunum mínum í fórnarpottinn til að fjármagna þá sem vinna hið raunverulega verk fyrir Guð. Þá sem eru í fullu starfi.



En mér tókst ekki að koma auga á það að viðskipti eru ekki annars flokks köllun. Það er alveg hægt að koma að gagni þar líkt og í ræðustól.



Engin tvískipting



Það er engin tvískipting milli þess heilaga og veraldlega. Allt er andlegt. Guðs ríki nær yfir öll svið lífsins, ekki bara innan fjögurra veggja kirkjubyggingar. Og við sem viðskiptamenn höfum oft skilvirkari og víðtækari samskipti við heiminn en dæmigerður prestur gerir. Okkur gefst mörg tækifæri til að sýna kærleika guðs og kraft á óvæntan hátt.



Hann lofaði að vera með okkur og að andi hans myndi leiða okkur inn í allan sannleika. Fyrirtæki þitt er ekki undanþegið þessu loforði. Það eru frábærar fréttir, er það ekki?



Guð bíður eftir því að við förum að fylgja ráðum hans og innsýn svo við getum beitt lausnum himins á jörðinni og kennt leiðir hans með því að sýna fram á lausnir á vandamálum heimsins. Heimurinn er brotinn og hrópar á svörin (sjá Róm 8:19). Við höfum aðgang að svörum... frá heilögum anda. Við ættum að búast við því að vera frumkvöðlar, höfundar, uppfinningamenn og hönnuðir lausna á vandamálum mannkynsins.



Það sem Jesús sýndi fram þegar hann læknaði fólk er sami kraftur og getur umbreytt viðskiptum þínum... samfélagi... einnig landi og þjóð.



Hefur þú afsalað þér hinni veraldlegu og helgu tvískiptingu? Ert þú í samstarfi við að koma himni til jarðar á þínu sviði í viðskiptum og í lífinu í dag?


Dag 2

About this Plan

Doing Business Supernaturally

Ég trúði lygi í mörg ár. Þessi lygi er allt of algeng meðal kristinna manna. Ég trúði á veraldlega heilaga tvískiptingu eða það sem á enskunni kallast: "secular-sacred dichotomy." Og það hélt aftur af mér. Má bjóða þér a...

More

Við viljum þakka Thistlebend Ministries fyrir þessa lestraráætlun. Frekari upplýsingar má finna á: http://dbs.godsbetterway.com/

YouVersion notar vafrakökur til að sérsníða upplifun þína. Með því að nota vefsíðu okkar samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum eins og lýst er í persónuverndarstefnu okkar