YouVersion Logo
Search Icon

Síraksbók 2

2
Þjónið Drottni með þolgæði
1Barnið mitt, er þú kemur til að þjóna Drottni
bú þig þá undir þolraun.
2Hjarta þitt sé einlægt og staðfast
og rótt á reynslutíma.
3Haltu þér fast við Drottin og vík eigi frá honum
og þú munt vaxa af því um síðir.
4Tak öllu sem að höndum ber,
berðu þjáningu og neyð með þolinmæði.
5Eins og gull er reynt í eldi,
þannig eru þeir sem Drottinn ann
reyndir í deiglu þjáningar.
6Treystu honum og hann mun taka þig að sér,
gakk réttan veg og vona á hann.
Náðugur og miskunnsamur er Drottinn
7Þér sem óttist Drottin, bíðið miskunnar hans,
snúið ei frá honum svo að þér fallið.
8Þér sem óttist Drottin, treystið honum,
hann mun eigi láta laun yðar bregðast.
9Þér sem óttist Drottin, væntið góðs,
eilífrar gleði og miskunnar.
10Hugsið til genginna kynslóða og gætið að:
Brást Drottinn nokkrum sem treysti honum?
Yfirgaf Drottinn nokkurn sem óttaðist hann?
Hver ákallaði Drottin og hlaut ekki áheyrn?
11Náðugur og miskunnsamur er Drottinn,
hann fyrirgefur syndir og bjargar á neyðarstundu.
12Vei blauðum hjörtum og magnvana höndum,
vei þeim syndara sem sýnir tvöfeldni.
13Vei huglausu hjarta sem treystir ekki,
eigi mun það vernd hljóta.
14Vei yður sem skortir þrautseigju,
hvað gerið þér er Drottinn kemur til dóms?
15Þeir sem óttast Drottin óhlýðnast eigi orðum hans.
Þeir sem hann elska ganga vegi hans.
16Þeir sem óttast Drottin leitast við að þóknast honum
og þeir sem elska hann sökkva sér í lögmálið.
17Þeir sem óttast Drottin undirbúa hjörtu sín
og beygja sig í auðmýkt fyrir honum.
18Látum oss falla í hendur Drottins
en eigi í hendur manna.
Miskunn hans er eins mikil
og máttug tign hans.

Currently Selected:

Síraksbók 2: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy