YouVersion Logo
Search Icon

Síraksbók 3

3
Heiðra foreldra
1Hlýðið á fortölur föður yðar, börnin mín.
Breytið eftir þeim svo að þér megið örugg vera
2því að Drottinn hefur sett börnum að heiðra föður,
ákvarðað rétt móður yfir sonum.
3Sá sem virðir föður sinn bætir fyrir syndir
4og sá sem heiðrar móður sína safnar sér fjársjóði.
5Sá sem virðir föður sinn mun barnalán hljóta
og er hann biður hlýtur hann bænheyrslu.
6Sá sem heiðrar föður sinn mun langlífur verða
og sá sem hlýðir Drottni er móður sinni huggun.
7Hlýð foreldrum eins og þræll húsbændum.
8Heiðra föður þinn í orði og verki
og þú munt hljóta blessun hans.
9Blessun föður er hornsteinn heimilis barna
en bölbæn móður sviptir það grunni.
10Upphef þig eigi með að niðurlægja föður þinn,
þér er ei vegsauki að vansæmd hans.
11Heiður föður er sæmd sonar,
en vansæmd móður er börnum smán.
12Annastu föður þinn í elli hans, barnið mitt,
hryggðu hann ekki svo lengi sem hann lifir.
13Ver honum nærgætinn þótt á hann sæki elliglöp,
vanvirð hann eigi meðan þér enn svellur þróttur.
14Gæska við föður gleymist eigi,
hún mun bæta fyrir það sem syndir þínar spilltu.
15Á neyðarstundu mun þín minnst verða
og syndir þínar hverfa líkt og hrím fyrir sólu.
16Sá guðlastar sem afrækir föður sinn,
Drottinn afneitar þeim sem reitir móður sína til reiði.
Ver auðmjúkur
17Barnið mitt, stunda iðju þína í auðmýkt,
þá mun þér unnað meira en gjafmildum manni.
18Ver því hógværari sem vegur þinn vex
og náð muntu hljóta í augum Drottins.
19Marga ber hátt og þeir eru dáðir
en auðmjúkum birtir hann leyndardóma sína.#3.19 Vantar í sum grísk handrit.
20Mikill er máttur Drottins
og auðmjúkir vegsama hann.
21Leita þess eigi sem er þér ofvaxið
og kanna það eigi sem þér er um megn.
22Hugleið þau boðorð sem þú hefur fengið,
hitt varðar þig engu sem er hulið.
23Sóa ei kröftum á það sem þú veldur eigi,
þér er þegar birt meira en á manns valdi er að skilja.
24Þótti hefur leitt marga afvega
og skaðlegar firrur spillt dómgreind þeirra.
25Án augna sérðu ekki ljós,
án þekkingar öðlast þú ekki speki.#3.25 Byggt á hebreskum handritum.
26Ill endalok bíða þverúðugra,
þeim sem ann hættu mun hún tortíma.
27Þverúðuga munu byrðar þjaka
og syndarinn hleður synd á synd ofan.
28Við böli hrokagikks er ekkert til bóta
því að illskan hefur fest rætur í honum.
29Viturt hjarta íhugar orðskviði
og næmt eyra er yndi spekings.
Gjafmildi við fátæka
30Vatnið slekkur brennandi bál
og góðverk bætir fyrir syndir.
31Þess manns mun síðar minnst
sem launar gott með góðu,
þegar á móti blæs mun hann stuðning hljóta.

Currently Selected:

Síraksbók 3: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy