YouVersion Logo
Search Icon

Opinberunarbókin 16

16
Skálar reiðinnar
1Þá heyrði ég mikla raust frá musterinu segja við englana sjö: „Hellið úr skálum Guðs reiði yfir jörðina.“
2Fyrsti engillinn fór þá og hellti úr sinni skál yfir jörðina og vond og illkynjuð kaun komu á þá menn sem höfðu merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess.
3Annar engillinn hellti úr sinni skál í hafið og það varð að blóði eins og úr dauðum manni og allar lífverur í hafinu dóu.
4Þriðji engillinn hellti úr sinni skál í fljótin og uppsprettur vatnanna og þau urðu að blóði. 5Og ég heyrði engil vatnanna segja: „Réttlátur ert þú að þú hefur dæmt þannig, þú sem ert og þú sem varst, þú hinn heilagi. 6Þeir hafa úthellt blóði heilagra og spámanna og því hefur þú gefið þeim blóð að drekka og verðir eru þeir þess.“ 7Og ég heyrði rödd frá altarinu segja: „Drottinn Guð, þú alvaldi, sannir og réttlátir eru dómar þínir.“
8Og fjórði engillinn hellti úr sinni skál yfir sólina. Og sólinni var gefið vald til að brenna mennina í eldi. 9Og mennirnir stiknuðu í ofurhita og lastmæltu nafni Guðs sem hefur vald yfir þessum plágum. Ekki sáu þeir að sér að þeir gæfu Guði dýrðina.
10Fimmti engillinn hellti úr sinni skál yfir hásæti dýrsins. Og ríki þess myrkvaðist og menn bitu í tungur sínar af kvöl. 11Og menn lastmæltu Guði himinsins fyrir kvalirnar og fyrir kaun sín en eigi bættu þeir ráð sitt og létu ekki af verkum sínum.
12Sjötti engillinn hellti úr sinni skál yfir fljótið mikla, Efrat. Og vatnið í því þornaði upp svo að vegur yrði búinn fyrir konungana sem koma úr austri. 13Þá sá ég þrjá óhreina anda, líka froskum, fara út af munni drekans og af munni dýrsins og af munni falsspámannsins. 14Þeir eru djöfla andar sem gera tákn. Þeir fara til allra konunga í veröldinni til að safna þeim saman til stríðsins á hinum mikla degi Guðs hins alvalda.
15„Gætið yðar, ég kem eins og þjófur. Sæll er sá sem vakir og varðveitir klæði sín til þess að hann gangi ekki nakinn um og menn sjái blygðun hans.“
16Og þeir söfnuðu þeim saman á þann stað sem á hebresku kallast Harmagedón.
17Sjöundi engillinn hellti úr sinni skál yfir loftið og raust mikil kom út úr musterinu, frá hásætinu, og sagði: „Það er fram komið.“ 18Og eldingar komu og dunur og þrumur og mikill landskjálfti svo að slíkur hefur eigi komið frá því menn urðu til á jörðunni. Svo mikill var sá jarðskjálfti. 19Og borgin mikla fór í þrjá hluta og borgir þjóðanna hrundu. Og Guð gleymdi ekki hinni miklu Babýlon og gaf henni bikarinn með víni heiftarreiði sinnar. 20Og allar eyjar hurfu og fjöllin voru ekki lengur til. 21Og stór högl, vættarþung, féllu niður af himni yfir mennina. Og mennirnir lastmæltu Guði fyrir haglpláguna því að sú plága var mikil.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy