YouVersion Logo
Search Icon

Opinberunarbókin 17

17
Skækjan mikla
1Einn af englunum sjö, sem halda á skálunum sjö, kom til mín og sagði: „Kom hingað og ég mun sýna þér hvernig skækjunni miklu verður refsað, borginni sem liggur við vötnin mörgu. 2Konungar jarðarinnar hafa drýgt saurlifnað með henni og þeir sem á jörðunni búa hafa orðið drukknir af lostaveigum hennar.“
3Og andinn kom yfir mig og engillinn leiddi mig út í eyðimörk. Þar sá ég konu sitja á skarlatsrauðu dýri, alsettu guðlöstunar nöfnum og hafði það sjö höfuð og tíu horn. 4Konan var klædd í purpura og skarlat og skrýdd gulli, gimsteinum og perlum. Hún hafði í hendi sér gullbikar, fullan af viðurstyggð og óhreinindum af saurlifnaði hennar. 5Og á enni hennar var ritað nafn, leyndardómur: Babýlon hin mikla, móðir alls saurlifnaðar og svívirðu á jörðunni. 6Og ég sá að konan var drukkin af blóði hinna heilögu og af blóði votta Jesú. Og ég undraðist stórlega er ég leit hana.
7Og engillinn sagði við mig: „Hví ertu forviða? Ég mun segja þér leyndardóm konunnar og dýrsins með höfuðin sjö og hornin tíu sem ber hana: 8Dýrið, sem þú sást, var, en er ekki, og það mun stíga upp frá undirdjúpinu og fara til glötunar. Og þeir sem á jörðu búa og eiga ekki frá grundvöllun veraldar nöfn sín skráð í lífsins bók munu undrast er þeir sjá dýrið sem var og er ekki og kemur aftur.
9Hér reynir á skilning og speki. Höfuðin sjö eru sjö fjöll sem konan situr á. Það eru líka sjö konungar. 10Fimm eru fallnir, einn er nú uppi, annar er ókominn og er hann kemur á hann að vera stutt. 11Og dýrið, sem var en er ekki, er einmitt hinn áttundi og er af þeim sjö og fer til glötunar.
12Og hornin tíu, sem þú sást, eru tíu konungar sem enn hafa eigi tekið við ríki heldur fá vald sem konungar eina stund ásamt dýrinu. 13Þessir hafa allir eitt ráð og ljá dýrinu mátt sinn og vald. 14Þessir munu heyja stríð við lambið. Og lambið og þeir sem með því eru, hinir kölluðu og útvöldu og trúu, munu sigra þá − því að lambið er Drottinn drottna og konungur konunga.“
15Og engillinn segir við mig: „Vötnin, sem þú sást, þar sem skækjan situr, eru lýðir og fólk, þjóðir og tungur. 16Og hornin tíu, sem þú sást, og dýrið munu hata skækjuna og svipta hana öllu og skilja hana eftir nakta. Þau munu eta hold hennar og brenna hana í eldi 17því að Guð hefur lagt þeim í brjóst að gera vilja sinn og vera ásátt um að fela dýrinu að ráða ríkjum, allt til þess er orð Guðs koma fram. 18Og konan, sem þú sást, er borgin mikla sem ríkir yfir konungum jarðarinnar.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy