YouVersion Logo
Search Icon

Opinberunarbókin 15

15
Síðustu plágurnar
1Og ég sá annað tákn á himni, mikið og undursamlegt: Sjö engla sem höfðu sjö síðustu plágurnar því að með þeim lauk reiði Guðs.
2Og ég leit sem glerhaf eldi blandið. Þeir sem höfðu unnið sigur á dýrinu og líkneski þess, og létu töluna sem táknar nafn þess ekki villa um fyrir sér, stóðu við glerhafið og héldu á hörpum Guðs. 3Þeir sungu söng Móse, þjóns Guðs, og söng lambsins:
Mikil og dásamleg eru verk þín,
Drottinn Guð, þú alvaldi,
réttlátir og sannir eru vegir þínir,
þú konungur aldanna.#15.3 Annar lesháttur: þjóðanna.
4Hver skyldi ekki óttast þig, Drottinn, og vegsama nafn þitt?
Því að þú einn ert heilagur,
allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér
því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.
5Og eftir þetta sá ég að upp var lokið musteri Guðs á himni, vitnisburðartjaldbúðinni. 6Englarnir sjö, sem höfðu plágurnar sjö, gengu þá út úr musterinu klæddir hreinu, skínandi líni og gyrtir gullbeltum um brjóst. 7Og englunum sjö fékk ein af verunum fjórum sjö gullskálar, fullar reiði Guðs, hans sem lifir um aldir alda. 8Og musterið fylltist af reyknum af dýrð Guðs og mætti hans og enginn mátti ganga inn í musterið uns plágurnar sjö, frá englunum sjö, væru hjá liðnar.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy