YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 10

10
Uppskeran er mikil
1Eftir þetta kvaddi Drottinn til aðra, sjötíu og tvo#10.1 Annar lesháttur: sjötíu. að tölu, og sendi þá á undan sér, tvo og tvo, í hverja þá borg og stað sem hann ætlaði sjálfur að koma til. 2Og hann sagði við þá: „Uppskeran er mikil en verkamenn fáir. Biðjið því Drottin uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar. 3Farið! Ég sendi yður eins og lömb meðal úlfa. 4Hafið ekki pyngju, ekki mal eða skó og heilsið engum á leiðinni. 5Hvar sem þér komið í hús, þá segið fyrst: Friður sé með húsi þessu. 6Og sé þar nokkurt friðarins barn mun friður yðar hvíla yfir því, ella hverfa aftur til yðar. 7Verið um kyrrt í sama húsi, neytið þess sem þar er fram borið í mat og drykk. Verður er verkamaðurinn launa sinna. Eigi skuluð þér flytjast hús úr húsi. 8Og hvar sem þér komið í borg og tekið er við yður, þá neytið þess sem sett er fyrir yður. 9Læknið þá sem þar eru sjúkir og segið þeim: Guðs ríki er komið í nánd við yður. 10En hvar sem þér komið í borg og eigi er við yður tekið, þá farið út á strætin og segið: 11Jafnvel það dust sem loðir við fætur vora úr borg yðar þurrkum vér af oss og þér getið hirt það. Vitið samt þetta, að Guðs ríki er komið í nánd. 12Ég segi yður: Bærilegra mun Sódómu á þeim degi en þeirri borg.
Sá sem hafnar mér
13Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gerst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gerðust í ykkur, hefðu þær löngu iðrast og setið í sekk og ösku. 14En Týrus og Sídon mun bærilegra í dóminum en ykkur. 15Og þú, Kapernaúm! Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða.
16Sá sem á yður hlýðir hlýðir á mig og sá sem hafnar yður hafnar mér. En sá sem hafnar mér hafnar þeim er sendi mig.“
Þeir sjötíu og tveir koma aftur
17Nú komu þeir sjötíu og tveir#10.17 Annar lesháttur: sjötíu. aftur með fögnuði og sögðu: „Drottinn, jafnvel illir andar hlýða okkur þegar við tölum í þínu nafni.“
18En Jesús mælti við þá: „Ég sá Satan hrapa af himni sem eldingu. 19Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun gera yður mein. 20Gleðjist samt ekki af því að illu andarnir hlýða yður, gleðjist öllu heldur af hinu að nöfn yðar eru skráð í himnunum.“
Ég vegsama þig, faðir
21Á sömu stundu fylltist Jesús af fagnandi gleði heilags anda og sagði: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.
22Allt hefur faðir minn falið mér og enginn veit hver sonurinn er nema faðirinn né hver faðirinn er nema sonurinn og sá sem sonurinn vill opinbera hann.“
Sæl eru þau augu
23Og Jesús sneri sér að lærisveinum sínum og sagði einslega við þá: „Sæl eru þau augu sem sjá það sem þér sjáið. 24Því að ég segi yður: Margir spámenn og konungar vildu sjá það sem þér sjáið en sáu það ekki og heyra það sem þér heyrið en heyrðu það ekki.“
Hvað á ég að gera?
25Lögvitringur nokkur sté fram, vildi freista Jesú og mælti: „Meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“
26Jesús sagði við hann: „Hvað er ritað í lögmálinu? Hvernig lest þú?“
27Hann svaraði: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig.“
28Jesús sagði við hann: „Þú svaraðir rétt. Ger þú þetta og þú munt lifa.“
29En lögvitringurinn vildi réttlæta sjálfan sig og sagði við Jesú: „Hver er þá náungi minn?“
30Því svaraði Jesús svo: „Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og féll í hendur ræningjum. Þeir flettu hann klæðum og börðu hann, hurfu brott síðan og létu hann eftir dauðvona. 31Svo vildi til að prestur nokkur fór ofan sama veg og sá manninn en sveigði fram hjá. 32Eins kom og Levíti þar að, sá hann og sveigði fram hjá. 33En Samverji nokkur, er var á ferð, kom að honum og er hann sá hann kenndi hann í brjósti um hann, 34gekk til hans, batt um sár hans og hellti í þau viðsmjöri og víni. Og hann setti hann á sinn eigin eyk, flutti hann til gistihúss og lét sér annt um hann. 35Daginn eftir tók hann upp tvo denara, fékk gestgjafanum og mælti: Lát þér annt um hann og það sem þú kostar meira til skal ég borga þér þegar ég kem aftur.
36Hver þessara þriggja sýnist þér hafa reynst náungi þeim manni sem féll í hendur ræningjum?“
37Hann mælti: „Sá sem miskunnarverkið gerði á honum.“
Jesús sagði þá við hann: „Far þú og ger hið sama.“
Eitt er nauðsynlegt
38Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt og kona að nafni Marta bauð honum heim. 39Hún átti systur er María hét og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans. 40En Marta lagði allan hug á að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til hans og mælti: „Drottinn, hirðir þú eigi um það að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér.“
41En Drottinn svaraði henni: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu 42en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy