YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 9

9
Postular sendir
1Jesús kallaði saman þá tólf og gaf þeim mátt og vald yfir öllum illum öndum og til að lækna sjúkdóma. 2Hann sendi þá að boða Guðs ríki og græða sjúka 3og sagði við þá: „Takið ekkert til ferðarinnar, hvorki staf né mal, brauð né silfur, og enginn hafi tvo kyrtla. 4Og hvar sem þið fáið inni, þar sé aðsetur ykkar og þaðan skuluð þið leggja upp að nýju. 5En taki menn ekki við ykkur, þá farið úr borg þeirra og hristið dustið af fótum ykkar til vitnisburðar gegn þeim.“
6Þeir lögðu af stað og fóru um þorpin, fluttu fagnaðarerindið og læknuðu hvarvetna.
Heródes vill sjá Jesú
7En Heródes fjórðungsstjóri frétti allt sem gerst hafði og vissi ekki hvað hann átti að halda því að sumir sögðu að Jóhannes væri risinn upp frá dauðum, 8aðrir að Elía væri kominn fram, enn aðrir að einn hinna fornu spámanna væri risinn upp. 9Heródes sagði: „Jóhannes lét ég hálshöggva en hver er þessi er ég heyri þvílíkt um?“ Og hann leitaði færis að sjá hann.
Jesús mettar fimm þúsundir
10Postularnir komu aftur og skýrðu Jesú frá öllu því er þeir höfðu gert en hann tók þá með sér og vék brott til bæjar, sem heitir Betsaída, til þess að þeir væru einir saman. 11Mannfjöldinn varð þess var og fór á eftir honum. Jesús tók mönnum vel og talaði við þá um Guðs ríki og læknaði þá er lækningar þurftu.
12Nú tók degi að halla. Komu þá þeir tólf að máli við hann og sögðu: „Lát þú mannfjöldann fara svo að hann nái til þorpa og býla hér í kring og geti fengið gistingu og mat því að hér erum við á óbyggðum stað.“
13En Jesús sagði við þá: „Gefið þeim sjálfir að eta.“
Þeir svöruðu: „Við eigum ekki meira en fimm brauð og tvo fiska nema við förum og kaupum vistir handa öllu þessu fólki.“ 14En þar voru um fimm þúsund karlmenn.
Hann sagði þá við lærisveina sína: „Látið þá setjast í hópa, um fimmtíu í hverjum.“
15Þeir gerðu svo og létu alla setjast. 16En hann tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut þau og gaf lærisveinunum til að bera fram fyrir mannfjöldann. 17Allir neyttu og urðu mettir. En leifarnar eftir þá voru teknar saman, tólf körfur brauðbita.
Játning Péturs
18Eitt sinn er Jesús var einn á bæn og lærisveinarnir hjá honum spurði hann þá: „Hvern segir fólkið mig vera?“
19Þeir svöruðu: „Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir að einn hinna fornu spámanna sé risinn upp.“
20Og Jesús sagði við þá: „En þið, hvern segið þið mig vera?“
Pétur svaraði: „Krist Guðs.“
Mannssonurinn á margt að líða
21Jesús lagði ríkt á við þá að segja þetta engum 22og mælti: „Mannssonurinn á margt að líða. Öldungarnir, æðstu prestarnir og fræðimennirnir munu útskúfa honum og hann verður líflátinn. En á þriðja degi mun hann upp rísa.“
23Og Jesús sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér. 24Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, hann mun bjarga því. 25Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn en týna eða glata sjálfum sér? 26Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og dýrð föðurins og heilagra engla mun hann blygðast sín fyrir þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð. 27En ég segi yður með sanni: Nokkrir þeirra sem hér standa munu ekki deyja fyrr en þeir sjá Guðs ríki.“
Þessi er sonur minn
28Um átta dögum eftir ræðu þessa tók Jesús með sér þá Pétur, Jóhannes og Jakob og gekk upp á fjallið að biðjast fyrir. 29Og er hann var að biðjast fyrir varð yfirlit ásjónu hans annað og klæði hans urðu hvít og skínandi. 30Og tveir menn voru á tali við hann. Það voru þeir Móse og Elía. 31Þeir birtust í dýrð og ræddu um brottför hans sem hann skyldi fullna í Jerúsalem. 32Þá Pétur og félaga hans sótti mjög svefn en nú vöknuðu þeir og sáu dýrð hans og mennina tvo er stóðu hjá honum. 33Þegar þeir voru að skilja við Jesú mælti Pétur við hann: „Meistari, gott er að við erum hér. Gerum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“ Ekki vissi Pétur hvað hann sagði.
34Um leið og Pétur mælti þetta kom ský og skyggði yfir þá og urðu þeir hræddir er þeir komu inn í skýið. 35Og rödd kom úr skýinu og sagði: „Þetta er sonur minn sem ég hef útvalið, hlýðið á hann!“ 36Er röddin hafði talað var Jesús einn. Og þeir þögðu og sögðu á þeim dögum engum frá neinu því sem þeir höfðu séð.
Jesús læknar svein
37Daginn eftir, er Jesús og lærisveinarnir fóru ofan af fjallinu, kom mikill mannfjöldi á móti Jesú. 38Og maður nokkur úr mannfjöldanum hrópar: „Meistari, ég bið þig að líta á son minn því að hann er einkabarnið mitt. 39Það er andi sem grípur hann og þá æpir hann skyndilega. Hann teygir hann svo að hann froðufellir og víkur varla frá honum og er að gera út af við hann. 40Ég bað lærisveina þína að reka hann út en þeir gátu það ekki.“
41Jesús svaraði: „Þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá ykkur og umbera ykkur? Fær þú hingað son þinn.“
42Þegar sveinninn var að koma slengdi illi andinn honum flötum og teygði hann ákaflega. En Jesús hastaði á óhreina andann, læknaði sveininn og gaf hann aftur föður hans. 43Og allir undruðust stórum veldi Guðs.
Þeir skildu ekki
Þá er allir dáðu allt það er hann gerði sagði Jesús við lærisveina sína: 44„Festið þessi orð í huga: Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur.“ 45En þeir skildu ekki hvað hann átti við. Það var þeim hulið til þess að þeir gætu ekki skilið það. Og þeir þorðu ekki að spyrja Jesú um þetta.
Hver er mestur
46Sú spurning kom fram meðal þeirra hver þeirra væri mestur. 47Jesús vissi hvað þeir hugsuðu í hjörtum sínum og tók lítið barn, setti það hjá sér 48og sagði við þá: „Hver sem tekur við þessu barni í mínu nafni tekur við mér og hver sem tekur við mér tekur við þeim er sendi mig. Því að sá sem minnstur er meðal ykkar allra, hann er mestur.“
Sá sem er ekki á móti ykkur
49Jóhannes tók til máls: „Meistari, við sáum mann reka út illa anda í þínu nafni og vildum við varna honum þess af því að hann fylgir okkur ekki.“
50En Jesús sagði við hann: „Varnið þess ekki. Sá sem er ekki á móti ykkur er með ykkur.“
Upp til Jerúsalem
51Nú fullnaðist brátt sá tími er Jesús skyldi upp numinn verða. Beindi hann þá augum til Jerúsalem, einráðinn að fara þangað. 52Og hann lét sendiboða fara á undan sér. Þeir fóru og komu í Samverjaþorp nokkurt til að búa honum gistingu. 53En menn tóku ekki við honum því að hann var á leið til Jerúsalem. 54Þegar lærisveinar hans, þeir Jakob og Jóhannes, sáu það sögðu þeir: „Drottinn, eigum við að bjóða að eldur falli af himni og tortími þeim?“#9.54 68 Sum handrit bæta hér við: eins og Elía gerði.
55En Jesús sneri sér við og ávítaði þá [og sagði: „Ekki vitið þið hvaða andi býr í ykkur. 56Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum heldur til að frelsa.“]#9.56 Vantar í sum handrit. Og þeir fóru í annað þorp.
Fylg þú mér
57Á leiðinni sagði maður nokkur við Jesú: „Ég vil fylgja þér hvert sem þú ferð.“
58Jesús sagði við hann: „Refar eiga greni og fuglar himins hreiður en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla.“
59Við annan sagði hann: „Fylg þú mér!“
Sá mælti: „Drottinn, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn.“
60Jesús svaraði: „Lát hina dauðu jarða sína dauðu en far þú og boða Guðs ríki.“
61Enn annar sagði: „Ég vil fylgja þér, Drottinn, en leyf mér fyrst að kveðja fólk mitt heima.“
62En Jesús sagði við hann: „Enginn sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur er hæfur í Guðs ríki.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy