YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 11

11
Kenndu okkur að biðja
1Svo bar við, er Jesús var á stað einum að biðjast fyrir, að einn lærisveina hans sagði við hann þá er hann lauk bæn sinni: „Drottinn, kenndu okkur að biðja eins og Jóhannes kenndi lærisveinum sínum.“
2En hann sagði við þá: „Þegar þér biðjist fyrir, þá segið:
Faðir,
helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki,
3gef oss hvern dag vort daglegt brauð.#11.3 Eða: brauð vort til dagsins á morgun.
4Fyrirgef oss vorar syndir
enda fyrirgefum vér öllum vorum skuldunautum.
Og eigi leið þú oss í freistni.“
Biðjið og yður mun gefast
5Og Jesús sagði við þá: „Nú á einhver yðar vin og fer til hans um miðnætti og segir við hann: Vinur, lánaðu mér þrjú brauð 6því að vinur minn er kominn til mín úr ferð og ég hef ekkert að bera á borð fyrir hann. 7Mundi hinn þá svara inni: Ger mér ekki ónæði. Það er búið að loka dyrum og börn mín og ég komin í rúmið. Ég get ekki farið á fætur að fá þér brauð? 8Ég segi yður, þótt hann fari ekki á fætur og fái honum brauð vegna vinfengis þeirra, þá fer hann samt fram úr sakir áleitni hans og fær honum eins mörg og hann þarf.
9Og ég segi yður: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. 10Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða. 11Er nokkur sá faðir yðar á meðal sem gæfi barni sínu höggorm ef það biður um fisk 12eða sporðdreka ef það biður um egg? 13Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðirinn himneski gefa þeim heilagan anda sem biðja hann.“
Guðs ríki komið
14Jesús var að reka út illan anda og var sá mállaus. Þegar illi andinn var farinn út tók málleysinginn að mæla og undraðist mannfjöldinn. 15En sumir þeirra sögðu: „Með fulltingi Beelsebúls, höfðingja illra anda, rekur hann út illu andana.“ 16En aðrir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni.
17En Jesús vissi hugrenningar þeirra og sagði: „Hvert það ríki, sem er sjálfu sér sundurþykkt, leggst í auðn, og hús fellur á hús. 18Sé nú Satan sjálfum sér sundurþykkur, hvernig fær ríki hans þá staðist − fyrst þér segið að ég reki illu andana út með fulltingi Beelsebúls? 19En reki ég illu andana út með fulltingi Beelsebúls, með hverju reka þá yðar menn þá út? Því skulu þeir vera dómarar yðar. 20En ef ég rek illu andana út með fingri Guðs, þá er Guðs ríki þegar yfir yður komið.
21Þegar sterkur maður, alvopnaður, varðveitir hús sitt, þá er allt í friði sem hann á 22en ráðist annar honum sterkari á hann og sigri hann tekur sá alvæpni hans er hann treysti á og skiptir herfanginu.
23Hver sem er ekki með mér er á móti mér, og hver sem safnar ekki saman með mér, hann sundurdreifir.
Sælir þeir sem heyra Guðs orð
24Þegar óhreinn andi fer út af manni reikar hann um eyðihrjóstur og leitar hælis. Og er hann finnur það ekki segir hann: Ég vil hverfa aftur í hús mitt, þaðan sem ég fór. 25Og er hann kemur og finnur það sópað og prýtt 26fer hann og tekur með sér sjö aðra anda sér verri og þeir fara inn og setjast þar að og verður svo hlutur þess manns verri eftir en áður.“
27Er Jesús mælti þetta hóf kona ein í mannfjöldanum upp rödd sína og sagði við hann: „Sæll er sá kviður er þig bar og þau brjóst er þú mylktir.“
28Jesús svaraði: „Já, því sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita það.“
Hér er meira
29Þegar fólkið þyrptist þar að tók Jesús svo til orða: „Þessi kynslóð er vond kynslóð. Hún heimtar tákn en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar. 30Því Jónas varð Nínívemönnum tákn og eins mun Mannssonurinn verða þessari kynslóð. 31Drottning Suðurlanda mun rísa upp í dóminum ásamt mönnum þessarar kynslóðar og sakfella þá því að hún kom frá endimörkum jarðar að heyra speki Salómons og hér er meira en Salómon. 32Nínívemenn munu koma fram í dóminum ásamt kynslóð þessari og sakfella hana því að þeir tóku sinnaskiptum við prédikun Jónasar og hér er meira en Jónas.“
Augað er lampi líkamans
33Enn sagði Jesús: „Enginn kveikir ljós og setur það í felur né undir mæliker heldur á ljósastiku svo að þeir sem inn koma sjái ljósið. 34Auga þitt er lampi líkamans.
Þegar auga þitt er heilt þá er og allur líkami þinn bjartur en sé það spillt þá er og líkami þinn dimmur. 35Gæt því þess að ljósið í þér sé ekki myrkur. 36Sé því líkami þinn allur bjartur og hvergi myrkur í honum verður hann allur í birtu eins og þegar lampi lýsir á þig með loga sínum.“
Hið ytra og innra
37Þá er Jesús hafði þetta mælt bauð farísei nokkur honum til dagverðar hjá sér. Jesús kom og settist til borðs. 38Faríseinn sá að hann þvoði ekki hendur sínar á undan máltíðinni og furðaði hann á því. 39Drottinn sagði þá við hann: „Þér farísear, þér hreinsið bikarinn og fatið utan en hið innra eruð þér fullir yfirgangs og illsku. 40Þér heimskingjar, hefur sá sem gerði hið ytra ekki einnig gert hið innra? 41En gefið fátækum það sem í er látið og þá er allt yður hreint.
42En vei yður, þér farísear! Þér gjaldið tíund af myntu og rúðu#11.42 Rúða, kryddjurt sem ekki var skylt að gjalda tíund af. Sjá 3Mós 27.30; 3Mós 14.22nn. og alls kyns matjurtum en hirðið ekki um réttlætið og kærleikann til Guðs. Þetta ber að gera og hitt eigi ógert að láta. 43Vei yður, þér farísear! Yður er ljúft að skipa æðsta bekk í samkundum og láta heilsa yður á torgum. 44Vei yður, því þér eruð eins og duldar grafir sem menn ganga yfir án þess að vita.“
45Þá tók lögvitringur einn til orða: „Meistari, þú meiðir okkur líka með því sem þú segir.“
46En Jesús mælti: „Vei yður líka, þér lögvitringar! Þér leggið á menn lítt bærar byrðar og sjálfir snertið þér ekki byrðarnar einum fingri. 47Vei yður! Þér hlaðið upp grafir spámannanna sem feður yðar líflétu. 48Þannig berið þér vitni um athafnir feðra yðar og samþykkið þær. Þeir líflétu þá en þér hlaðið upp grafirnar. 49Þess vegna hefur og speki Guðs sagt: Ég mun senda þeim spámenn og postula og suma þeirra munu þeir lífláta og ofsækja. 50Þannig verður kynslóð þessi krafin um blóð allra spámannanna, er úthellt hefur verið frá grundvöllun heims, 51frá blóði Abels til blóðs Sakaría sem drepinn var milli altarisins og musterisins. Já, segi ég yður, þessi kynslóð verður látin gjalda fyrir það.
52Vei yður, þér lögvitringar! Þér hafið hrifsað til yðar lykil viskunnar. Sjálfir hafið þér ekki gengið inn og þeim hafið þér varnað sem inn vildu ganga.“
53Og er Jesús var farinn út þaðan tóku fræðimenn og farísear að ganga hart að honum og spyrja hann í þaula um margt 54og sitja um að veiða eitthvað af vörum hans.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy