YouVersion Logo
Search Icon

Kólossubréfið 1

1
Kveðja
1Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú, og Tímóteus, bróðir vor, heilsa 2þeim í Kólossu sem eru trúuð og helguð systkin#1.2 Orðrétt: hinum heilögu og trúuðu bræðrum. í Kristi. Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum.
Þakkir og fyrirbæn
3Ég þakka Guði, föður Drottins vors Jesú Krists, ávallt er ég bið fyrir ykkur. 4Ég hef heyrt um trú ykkar á Krist Jesú og um kærleikann sem þið berið til allra heilagra 5vegna vonarinnar um það sem þið eigið geymt í himnunum og þið hafið áður heyrt um í orði sannleikans, fagnaðarerindinu. 6Það er ekki aðeins komið til ykkar heldur alls heimsins og ber ávöxt og vex eins og það hefur líka gert hjá ykkur frá þeim degi er þið heyrðuð það og sannfærðust um náð Guðs. 7Hið sama hafið þið og numið af Epafrasi, elskuðum samþjóni okkar, sem er trúr þjónn Krists í ykkar þágu.#1.7 Annar lesháttur: í okkar þágu. 8Hann hefur og sagt okkur frá kærleika ykkar sem andinn hefur vakið með ykkur.
9Frá þeim degi, er ég heyrði þetta, hef ég því ekki látið af að biðja fyrir ykkur. Ég bið þess að Guð láti anda sinn auðga ykkur að þekkingu á vilja sínum með allri speki og skilningi 10svo að þið breytið eins og Guði líkar og þóknist honum á allan hátt, að þið berið ávöxt með hvers kyns góðum verkum og vaxið að þekkingu á Guði. 11Hann styrki ykkur á allar lundir með dýrðarmætti sínum svo að þið fyllist þolgæði í hvívetna og umburðarlyndi og getið með gleði 12þakkað#1.12 Eða: umburðarlyndi og gleði og getið þakkað. föðurnum sem hefur gert ykkur fært að fá arfleifð heilagra í ljósinu. 13Hann hefur frelsað okkur frá valdi myrkursins og flutt okkur yfir í ríki síns elskaða sonar. 14Í honum eigum við endurlausnina, fyrirgefningu synda okkar.
Guð í Kristi
15Hann er ímynd hins ósýnilega Guðs,
frumburður allrar sköpunar.
16Enda var allt skapað í honum
í himnunum og á jörðinni,
hið sýnilega og hið ósýnilega,
hásæti og herradómar, tignir og völd.
Allt er skapað fyrir hann og til hans.
17Hann er fyrri en allt og allt á tilveru sína í honum.
18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar,
hann sem er upphafið, frumburðurinn frá hinum dauðu.
Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.
19Því að í honum þóknaðist Guði að láta alla fyllingu sína búa
20og láta hann koma öllu í sátt við sig,
öllu bæði á jörðu og himnum,
með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.
21Ykkur, sem voruð áður fráhverf Guði og óvinveitt í huga og vondum verkum, 22hefur hann nú sætt við sig með dauða Krists í jarðneskum líkama. Hann lætur ykkur koma fram fyrir sig heilög og lýtalaus, óaðfinnanleg, 23ef þið standið stöðug í trúnni, á föstum grunni og hvikið ekki frá von þess fagnaðarerindis sem þið hafið heyrt og boðað hefur verið öllu sem skapað er í heiminum. Ég, Páll, er orðinn þjónn þess.
Hann boðum við
24Nú er ég glaður í þjáningum mínum ykkar vegna og uppfylli með þjáningum líkama míns það sem enn vantar á þjáningar Krists til heilla fyrir líkama hans, kirkjuna. 25Hennar þjónn er ég orðinn og hef það hlutverk að boða Guðs orð óskorað, 26leyndardóminn sem hefur verið hulinn frá upphafi tíða og kynslóða en hefur nú verið opinberaður Guðs heilögu. 27Guð vildi opinbera þeim hvílíkan dýrðarríkdóm heiðnar þjóðir eiga í þessum leyndardómi sem er Kristur meðal ykkar, von dýrðarinnar.
28Hann boða ég, áminni og fræði hvern mann með allri speki að ég megi leiða alla fram fullkomna í Kristi. 29Að þessu strita ég og stríði með þeim mætti sem Kristur lætur kröftuglega verka í mér.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy