YouVersion Logo
Search Icon

Kólossubréfið 2

2
1Ég vil að þið vitið hversu hörð barátta mín er vegna ykkar og þeirra í Laódíkeu og allra þeirra sem hafa ekki séð mig sjálfan. 2Mig langar að allir uppörvist í hjörtum sínum, sameinist í kærleika og öðlist fulla sannfæringu og innsýn og geti gjörþekkt leyndardóm Guðs sem er Kristur.#2.2 Aðrir leshættir: leyndardóm Guðs, föður Krists; leyndardóm Guðs, föðurins og Krists. 3En í honum eru allir fjársjóðir spekinnar og þekkingarinnar fólgnir.
4Þetta segi ég til þess að enginn blekki ykkur með fagurgala. 5Ég er hjá ykkur í andanum þótt ég sé líkamlega fjarlægur og horfi með fögnuði á góða skipan hjá ykkur og festu ykkar í trúnni á Krist.
Hlutdeild í Kristi, líf í honum
6Þið hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum. 7Verið rótfest í honum og byggð á honum, staðföst í trúnni, eins og ykkur hefur verið kennt, og auðug að þakklátsemi.
8Gætið þess að láta engan hertaka ykkur með marklausu, villandi spekitali sem byggist á mannasetningum og er komið frá heimsvættunum en ekki frá Kristi. 9Í manninum Jesú býr öll fylling guðdómsins 10og þið hafið öðlast hlutdeild í fullkomnun hans sem er höfuð hvers kyns tignar og valds.
11Í honum eruð þið umskorin þeirri umskurn sem ekki er með höndum gerð. 12Með umskurn Krists voruð þið afklædd hinum synduga líkama, greftruð með Kristi í skírninni og uppvakin til lífs með honum fyrir trúna á mátt Guðs sem vakti hann frá dauðum.
13Þið voruð dauð sökum afbrota ykkar og umskurnarleysis. En Guð lífgaði ykkur ásamt honum þegar hann fyrirgaf okkur öll afbrotin. 14Hann afmáði skuldabréfið sem þjakaði okkur með ákvæðum sínum. Hann tók það burt með því að negla það á krossinn. 15Hann fletti vopnum tignirnar og völdin og leiddi þau fram opinberlega til háðungar þegar hann fór sína sigurför í Kristi.
16Enginn skyldi því dæma ykkur fyrir mat eða drykk eða það sem snertir hátíðir, tunglkomur eða hvíldardaga. 17Slíkt er aðeins skuggi þess sem koma átti. Veruleikinn er Kristur. 18Látið þá ekki taka af ykkur hnossið sem stæra sig af auðmýkt sinni og engladýrkun og státa af sýnum sínum. Þeir hrokast upp af engu í sjálfshyggju 19í stað þess að halda sér við hann sem er höfuðið og styrkir allan líkamann og tengir hann saman með taugum og böndum svo að hann vex eins og Guð vill.
20Fyrst þið dóuð með Kristi og eruð laus undan valdi heimsvættanna, hvers vegna hagið þið ykkur þá eins og þið lifðuð lífi þessa heims og látið leggja fyrir ykkur boð eins og þessi: 21„Snertu ekki, bragðaðu ekki, taktu ekki á?“ − 22Allt mun þetta þó eyðast við notkun. − Mannaboðorð og mannasetningar. 23Þó hefur þetta að sönnu orð á sér sem speki, slík sjálfvalin dýrkun og auðmýking og harðneskja við líkamann. En gildi hefur það ekkert, fullnægir aðeins eigin hvötum.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy