Frá þeim degi, er ég heyrði þetta, hef ég því ekki látið af að biðja fyrir ykkur. Ég bið þess að Guð láti anda sinn auðga ykkur að þekkingu á vilja sínum með allri speki og skilningi svo að þið breytið eins og Guði líkar og þóknist honum á allan hátt, að þið berið ávöxt með hvers kyns góðum verkum og vaxið að þekkingu á Guði.