YouVersion Logo
Search Icon

Þriðja Jóhannesarbréf 1

1
Kveðja
1Öldungurinn heilsar elskuðum Gajusi sem ég ann í sannleika.
2Ég bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllu, þú sért heill heilsu og þér líði vel í sál og sinni. 3Ég varð mjög glaður þegar bræður komu og greindu frá hve trúr þú ert sannleikanum og breytir eftir honum. 4Ég hef enga meiri gleði en þá að heyra að börnin mín hlýði sannleikanum.
Samverkamenn sannleikans
5Þú sýnir trúnað þinn, minn elskaði, í öllu sem þú vinnur fyrir söfnuðinn#1.5 Orðrétt: fyrir bræðurna. og jafnvel ókunna menn. 6Þeir hafa vitnað fyrir söfnuðinum um kærleika þinn. Þú gerir vel að greiða för þeirra eins og verðugt er í Guðs augum. 7Því að sakir nafns Jesú lögðu þeir af stað og þiggja ekki neitt af heiðnum mönnum. 8Þess vegna ber okkur að hjálpa þessum mönnum og verða þannig samverkamenn þeirra í þágu sannleikans.
Díótrefes og Demetríus
9Ég hef ritað nokkuð til safnaðarins en Díótrefes, sem vill vera fremstur meðal þeirra, tekur eigi mark á mér. 10Þess vegna ætla ég, ef ég kem, að benda á gjörðir hans, hvernig hann lætur ófrægja mig með ljótum orðum. Og ekki nægir honum þetta. Hann tekur ekki heldur á móti bræðrum sem koma. Og vilji aðrir gera það hindrar hann þá og rekur úr söfnuðinum.
11Líktu ekki eftir því sem illt er, minn elskaði, heldur eftir því sem gott er. Sá sem gerir gott heyrir Guði til en sá sem gerir illt hefur ekki séð Guð.
12Demetríus fær góðan vitnisburð hjá öllum, já, hjá sannleikanum sjálfum. Ég ber honum hið sama og þú veist að vitnisburður minn er sannur.
Lokaorð
13Ég hef margt að rita þér en vil ekki rita þér með bleki og penna. 14En ég vona að sjá þig bráðum og munum við þá talast við augliti til auglitis.
15Friður sé með þér. Vinirnir biðja að heilsa þér. Heilsa þú vinunum hverjum fyrir sig.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy