YouVersion Logo
Search Icon

Fyrra Tímóteusarbréf 1

1
Kveðja
1Páll, postuli Krists Jesú, að boði Guðs frelsara vors og Krists Jesú, vonar vorrar, heilsar 2Tímóteusi, skilgetnu barni sínu í trúnni.
Náð, miskunn og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, Drottni vorum.
Varað við villukennendum
3Þegar ég var á förum til Makedóníu hvatti ég þig að halda kyrru fyrir í Efesus. Þú áttir að bjóða vissum mönnum að fara ekki með villukenningar 4og gefa sig ekki að kynjasögum og endalausum ættartölum er fremur efla þrætur en trúarskilning á ráðstöfun Guðs. 5Markmið fræðslunnar er að vekja kærleika af hreinu hjarta, góðri samvisku og hræsnislausri trú. 6Sumir hafa villst frá þessu og hafa snúið sér að innantómu orðagjálfri. 7Þeir vilja útskýra lögmálið þótt þeir hvorki skilji sjálfir hvað þeir segja né það sem þeir telja öðrum trú um.
8Við vitum að lögmálið er gott sé það rétt notað 9og þess gætt að það er ekki sett vegna réttlátra heldur fyrir lögleysingja og þverúðuga, óguðlega og syndara, vanheilaga og óhreina, föðurmorðingja og móðurmorðingja, manndrápara, 10saurlífismenn, karla sem hórast með körlum, þrælasala, lygara, meinsærismenn og hvað sem það er nú annað sem gagnstætt er hinni heilnæmu kenningu. 11Þetta er samkvæmt fagnaðarerindinu um dýrð hins blessaða Guðs sem mér var trúað fyrir.
Ég þakka Guði
12Ég þakka honum sem mig styrkan gerði, Kristi Jesú, Drottni vorum, fyrir það að hann sýndi mér það traust að fela mér þjónustu, 13mér sem fyrrum lastmælti honum, ofsótti hann og smánaði. En mér var miskunnað, sökum þess að ég trúði ekki og vissi ekki hvað ég gerði, 14og náðin Drottins vors varð stórlega rík með trúnni og kærleikanum sem veitist í Kristi Jesú.
15Það orð er satt, og í alla staði þess vert að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn og er ég þar fremstur í flokki. 16En Guð miskunnaði mér til þess að ég yrði fyrstur þeirra sem Kristur Jesús sýnir allt sitt mikla langlyndi og þar með yrði ég dæmi handa þeim sem á hann munu trúa til eilífs lífs.
17Konungi eilífðar, ódauðlegum, ósýnilegum, einum Guði sé heiður og dýrð um aldir alda. Amen.
18Þessi fyrirmæli legg ég fyrir þig, barnið mitt, Tímóteus, og minni á þau spádómsorð sem áður voru töluð yfir þér. Minnugur þeirra skaltu berjast hinni góðu baráttu, 19í trú og með góða samvisku. Henni hafa sumir hafnað og liðið skipbrot á trú sinni. 20Í tölu þeirra eru þeir Hýmeneus og Alexander, sem ég hef selt Satan á vald, til þess að hirtingin kenni þeim að hætta að guðlasta.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy