YouVersion Logo
Search Icon

Fyrra Tímóteusarbréf 2

2
Um guðsþjónustu og bænagjörð
1Fyrst af öllu hvet ég til að biðja og ákalla Guð og bera fram fyrirbænir og þakkir fyrir alla menn. 2Biðjið fyrir konungum og öllum þeim sem hátt eru settir til þess að við fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í guðsótta og siðprýði. 3Þetta er gott og þóknanlegt Guði, frelsara vorum, 4sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.
5Einn er Guð. Einn er og meðalgangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur Jesús 6sem gaf sjálfan sig til lausnargjalds fyrir alla. Það var vitnisburður hans á settum tíma. 7Guð skipaði mig prédikara og postula til að boða hann − ég tala sannleika, lýg ekki − kennara heiðingja í trú og sannleika.
8Ég vil að karlmenn biðjist hvarvetna fyrir með upplyftum heilögum höndum#2.8 Gyðingar báðu til Guðs standandi og lyftu höndum til himins, sbr. 2Mós 9.29. án reiði og tvídrægni. 9Sömuleiðis vil ég að konur séu látlausar í klæðaburði, ekki með fléttur og gull eða perlur og skartklæði 10heldur skrýðist góðum verkum eins og sómir konum er segjast vilja dýrka Guð.
11Kona á að læra í kyrrþey í allri auðmýkt. 12Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum heldur á hún að vera kyrrlát. 13Því að Adam var fyrst myndaður, síðan Eva. 14Adam lét ekki tælast heldur lét konan tælast og gerðist brotleg. 15En hún fæðir börnin og verður því hólpin ef hún er staðföst#2.15 Orðrétt: ef þau standa stöðug. í trú, kærleika og helgun samfara hóglæti.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy