YouVersion Logo
Search Icon

Speki Salómons 19

19
Egyptar drukkna, Ísraelsmenn fara yfir hafið
1En yfir hinum guðlausu grúfði vægðarlaus reiði Guðs þar til yfir lauk, enda sá hann fyrir illvirkin sem þeir áttu eftir að fremja. 2Þeir áttu eftir að sjá sig um hönd og veita Ísraelsmönnum eftirför þótt þeir hefðu veitt þeim fararleyfi og stuðlað að brottför þeirra. 3Meðan þeir voru enn þjakaðir sorg og sátu harmþrungnir við grafir hinna látnu náði ný fásinna tökum á þeim. Þeir tóku að ofsækja og elta eins og strokumenn þá sem þeir höfðu rétt áður rekið burt og beðið að fara. 4Makleg örlög leiddu þá til þessara örþrifaráða og fengu þá til að gleyma því sem liðið var. Það var til þess að þeir tækju út til fulls þá hegningu sem þeir höfðu unnið til. 5Lýður þinn átti að hljóta undursamlega för en hinir að mæta dauðanum með óvenjulegum hætti.
6Allt eðli sköpunarinnar tók stakkaskiptum að nýju frá grunni og hlýddi skipunum þínum til þess að börn þín varðveittust ósködduð. 7Menn sáu ský leggjast yfir herbúðirnar og fast land reis þar sem fyrr var þakið vatni. Rauðahafið varð greiðfær vegur og ólgandi sjórinn grænn völlur. 8Þar fór yfir allur lýðurinn sem hönd þín hlífði og séð hafði dásamleg undur. 9Þeir voru eins og hestar í haga og léku sér sem lömb og vegsömuðu þig, Drottinn, sem frelsaðir þá. 10Því að enn var þeim það hugstætt sem gerst hafði í útlegðinni. Mý hafði sprottið upp úr jörðinni í stað þess að kvikna á eðlilegan hátt. Fljótið spjó froskamergð í stað þess að fóstra lagardýr. 11Þegar þá síðar langaði í eitthvað gómsætt að eta og þeir báðu um það fengu þeir að sjá fugla verða til á nýjan hátt: 12Lynghænsni stigu upp úr hafinu til að seðja hungur þeirra.
13Á syndurum dundu refsingar en undan þeim fóru fyrirboðar, miklar eldingar. Maklega guldu þeir eigin illsku því að þeir höfðu alið með sér hatramman hug til útlendinga. 14Aðrir hafa úthýst ókunnum aðkomumönnum en þessir menn þrælkuðu gesti sem gert höfðu vel til þeirra. 15Og ekki nóg með það. Hinir, sem tóku útlendingum illa, munu vissulega þurfa að svara fyrir það 16en þessir fögnuðu þeim með veisluhöldum og þjökuðu þá síðan með hræðilegu erfiði er þeir höfðu þegar öðlast þegnréttindi. 17Þeir voru líka slegnir blindu eins og hinir við dyr hins réttláta þegar þeir, umluktir niðamyrkri, leituðu inngöngu hver um sínar dyr.
18Frumefnin geta sjálf komið fram í nýjum samböndum eins og stef breytir um takt þegar leikið er á strengi en hljómurinn helst ávallt hinn sami. Þetta má ljóslega sjá með því að grandskoða það sem þá gerðist. 19Landdýr urðu að lagardýrum og sunddýr gengu á land. 20Eldurinn magnaðist að eigin krafti í vatninu og vatnið gleymdi eðli sínu að slökkva. 21Þó eyddu logarnir hvorki holdi auðsærðra dýra, sem óðu eldinn, né leystist himnesk fæðan upp, sem er hrími líkust, þótt hún bráðni auðveldlega. 22Já, á allan hátt hefur þú, Drottinn, gert lýð þinn mikinn og vegsamlegan. Þú hefur aldrei afrækt hann og ávallt og alls staðar veitt honum fulltingi.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy