YouVersion Logo
Search Icon

Rómverjabréfið 14

14
Einn skal annan styrkja
1Takið á móti trúarveikum án þess að dæma skoðanir þeirra. 2Einn er þeirrar trúar að alls megi neyta, annar er veikur í trúnni og neytir einungis jurtafæðu. 3Sá sem neytir skal ekki fyrirlíta hinn sem neytir ekki og sá sem neytir ekki skal ekki dæma þann sem neytir því að Guð hefur tekið á móti honum. 4Hvað átt þú með að dæma þjón annars manns? Hann stendur og fellur herra sínum. Og hann mun standa því að megnugur er Drottinn þess að láta hann standa.
5Einn gerir mun á dögum, annar metur alla daga jafna. Hver og einn fylgi sannfæringu sinni. 6Sá sem þykist verða að taka tillit til þess hvaða dagur er gerir svo vegna Drottins. Og sá sem neytir kjöts gerir það vegna Drottins því að hann gerir Guði þakkir. Hinn sem lætur óneytt gerir svo vegna Drottins og færir Guði þakkir. 7Því að enginn okkar lifir sjálfum sér og enginn deyr sjálfum sér. 8Ef við lifum, lifum við Drottni, ef við deyjum, deyjum við Drottni. Hvort sem við þess vegna lifum eða deyjum þá erum við Drottins. 9Því að til þess dó Kristur og varð aftur lifandi að hann skyldi drottna bæði yfir dauðum og lifandi. 10En þú, hví dæmir þú bróður þinn? Eða þá þú, hví fyrirlítur þú bróður þinn? Öll munum við verða að standa frammi fyrir dómstóli Guðs. 11Því að ritað er: „Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn, fyrir mér skal hvert kné beygja sig og sérhver tunga vegsama Guð.“
12Þannig skal sérhvert okkar gera Guði skil á sjálfu sér.
13Dæmum því ekki framar hvert annað. Hitt skuluð þið ákveða að verða trúsystkinum#14.13 Orðrétt: bræðrum. ykkar ekki til ásteytingar eða falls. 14Það veit ég með fullri vissu í trúnni á Drottin Jesú að ekkert er vanheilagt í sjálfu sér nema þá þeim sem heldur eitthvað vanheilagt, honum er það vanheilagt. 15Ef bróðir þinn eða systir#14.15 Orðrétt: bróðir. hryggist sökum þess sem þú etur, þá ertu kominn af kærleikans braut. Hrind ekki með mat þínum í glötun þeim manni sem Kristur dó fyrir.
16Látið því ekki hið góða sem þið eigið verða fyrir lasti. 17Guðs ríki er ekki matur og drykkur heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda. 18Hver sem þannig þjónar Kristi er Guði velþóknanlegur og í metum hjá mönnum.
19Keppum þess vegna eftir því sem til friðar heyrir og eflir samfélagið. 20Brjóttu ekki niður verk Guðs vegna matar. Allt er að sönnu hreint en allt verður samt illt þeim manni sem etur öðrum til falls. 21Það er rétt að eta hvorki kjöt né drekka vín eða gera neitt það annað sem kemur illa við bróður þinn eða systur.#14.21 Orðrétt: bróður þinn. 22Haltu fast við trúna sem þú átt með sjálfum þér frammi fyrir Guði. Sæll er sá sem þarf ekki að áfella sig fyrir það sem hann telur vera rétt. 23En sá sem er efablandinn og etur þó, hann er dæmdur af því að hann gerir það ekki af trú. Allt sem er ekki af trú er synd.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy