YouVersion Logo
Search Icon

Sálmarnir 43

43
1Lát mig ná rétti mínum, Guð,
sæktu mál mitt gegn miskunnarlausri þjóð,
bjarga mér frá svikulum og ranglátum mönnum.
2Því að þú ert sá Guð sem er mér vígi,
hví hefur þú útskúfað mér,
hví verð ég að ganga um harmandi,
kúgaður af óvinum?
3Send ljós þitt og trúfesti þína,
þau skulu leiða mig,
þau skulu fara með mig til fjallsins þíns helga,
til bústaðar þíns,
4svo að ég megi inn ganga að altari Guðs,
til Guðs, minnar fagnandi gleði,
og lofa þig undir hörpuslætti,
Guð, þú Guð minn.
5Hví ert þú buguð, sál mín,
og ólgar í mér?
Vona á Guð
því að enn mun ég fá að lofa hann,
hjálpræði auglitis míns og Guð minn.

Currently Selected:

Sálmarnir 43: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy