YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 21

21
Eyrir ekkjunnar
1Þá leit Jesús upp og sá auðmenn leggja gjafir sínar í fjárhirsluna. 2Hann sá og ekkju eina fátæka leggja þar tvo smápeninga. 3Þá sagði hann: „Ég segi ykkur með sanni, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir. 4Hinir allir lögðu í sjóðinn af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum, alla björg sína.“
Ekki steinn yfir steini
5Einhverjir höfðu orð á að helgidómurinn væri prýddur fögrum steinum og heitgjöfum. Þá sagði Jesús: 6„Þeir dagar koma að allt sem hér blasir við verður lagt í rúst, ekki steinn yfir steini eftir.“
Gætið yðar
7En þeir spurðu Jesú: „Meistari, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess að það sé að koma fram?“
8Hann svaraði: „Varist að láta leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: Það er ég! og: Tíminn er í nánd! Fylgið þeim ekki. 9En þegar þér spyrjið hernað og upphlaup, þá skelfist ekki. Þetta á undan að fara en endirinn kemur ekki samstundis.“
10Síðan sagði Jesús við þá: „Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, 11þá verða landskjálftar miklir og drepsóttir og hungur á ýmsum stöðum en ógnir og tákn mikil á himni.
Tækifæri til vitnisburðar
12En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsækja yður, færa yður fyrir samkundur og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja sakir nafns míns. 13Þetta veitir yður tækifæri til að bera mér vitni. 14En festið það vel í huga að vera ekki fyrir fram að hugsa um hvernig þér eigið að verjast 15því ég mun gefa yður orð og visku sem engir mótstöðumenn yðar fá staðið í gegn né hrakið. 16Jafnvel foreldrar, systkin, frændfólk og vinir munu framselja yður og sumir yðar munu líflátnir. 17Og allir munu hata yður af því að þér trúið á mig 18en ekki mun týnast eitt hár á höfði yðar. 19Verið þrautseigir, með því munuð þér ávinna lífið.
Tákn
20En þegar þér sjáið herfylkingar umkringja Jerúsalem, þá vitið að eyðing hennar er í nánd. 21Þá flýi þau sem í Júdeu eru til fjalla, þau sem í borginni eru flytjist burt og þau sem eru á ekrum úti fari ekki inn í hana. 22Því þetta eru refsingardagar, þá er allt það rætist sem ritað er. 23Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir þessum lýð. 24Menn munu falla fyrir sverðseggjum og verða herleiddir til allra þjóða og framandi þjóðir munu fótum troða Jerúsalem þar til tímar heiðingjanna eru liðnir.
Mannssonurinn kemur
25Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný. 26Menn munu falla í öngvit af ótta og kvíða fyrir því er koma mun yfir heimsbyggðina því að kraftar himnanna munu riðlast. 27Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð. 28En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og berið höfuðið hátt því að lausn yðar er í nánd.“
Gætið að fíkjutrénu
29Jesús sagði þeim og líkingu: „Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám. 30Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður að sumarið er í nánd. 31Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs ríki er í nánd.
32Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok uns allt er komið fram. 33Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.
Vakið og biðjið
34Hafið gát á sjálfum yður, látið ekki svall og drykkju eða áhyggjur þessa lífs ná tökum á yður svo að sá dagur komi ekki skyndilega yfir yður 35eins og snara. En hann mun koma yfir alla menn sem byggja gjörvalla jörð. 36Vakið því allar stundir og biðjið svo að þér megið umflýja allt þetta sem koma á og standast frammi fyrir Mannssyninum.“
37Á daginn var Jesús að kenna í helgidóminum en fór og dvaldist um nætur á Olíufjallinu sem svo er nefnt. 38Og allt fólkið kom árla á morgnana til hans í helgidóminn að hlýða á hann.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy