YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 20

20
Með hvaða valdi?
1Eitt sinn var Jesús að kenna fólkinu í helgidóminum og flutti fagnaðarerindið. Þá gengu æðstu prestarnir og fræðimennirnir ásamt öldungunum til hans 2og sögðu: „Seg þú okkur, með hvaða valdi gerir þú þetta? Hver hefur gefið þér þetta vald?“
3Hann svaraði þeim: „Ég vil og leggja spurningu fyrir ykkur. Segið mér: 4Hver fól Jóhannesi að skíra, var það Guð eða voru það menn?“
5Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: „Ef við svörum: Það var Guð, spyr hann: Hví trúðuð þið honum þá ekki? 6Ef við svörum: Það voru menn, mun allt fólkið grýta okkur því að menn eru sannfærðir um að Jóhannes sé spámaður.“ 7Þeir kváðust því ekki vita hver fól honum það.
8Jesús sagði við þá: „Ég segi ykkur þá ekki heldur hver fól mér að gera þetta.“
Vondir vínyrkjar
9Og Jesús tók að segja fólkinu dæmisögu þessa: „Maður nokkur plantaði víngarð og seldi hann vínyrkjum á leigu, fór síðan úr landi til langdvala. 10Á settum tíma sendi hann þjón til vínyrkjanna að þeir fengju honum hlut af ávexti víngarðsins en vínyrkjarnir börðu hann og sendu burt tómhentan. 11Aftur sendi hann annan þjón. Þeir börðu hann einnig og svívirtu og sendu burt tómhentan. 12Og enn sendi hann hinn þriðja en þeir veittu honum einnig áverka og köstuðu honum út. 13Þá sagði eigandi víngarðsins: Hvað á ég að gera? Ég sendi son minn elskaðan. Má vera þeir virði hann. 14En er vínyrkjarnir sáu hann báru þeir saman ráð sín og sögðu: Þetta er erfinginn. Drepum hann, þá fáum við arfinn. 15Og þeir köstuðu honum út fyrir víngarðinn og drápu hann.
Hvað mun nú eigandi víngarðsins gera við þá? 16Hann mun koma, tortíma vínyrkjum þessum og fá öðrum víngarðinn.“
Þegar þeir heyrðu þetta sögðu þeir: „Verði það aldrei.“
17Jesús horfði á fólkið og mælti: „Hvað merkir þá ritning þessi:
Steinninn sem smiðirnir höfnuðu
er orðinn að hyrningarsteini.
18Hver sem fellur á þennan stein mun sundur molast
og þann sem hann fellur á mun hann sundur merja.“
19Fræðimennirnir og æðstu prestarnir vildu leggja hendur á hann á sömu stundu en óttuðust fólkið. Þeir skildu að hann átti við þá með dæmisögu þessari.
Keisarinn og Guð
20Þeir höfðu gætur á Jesú og sendu njósnarmenn er létust vera einlægir. Þeir áttu að láta hann tala af sér svo að þeir mættu framselja hann í hendur og á vald landstjórans. 21Þeir spurðu hann: „Meistari, við vitum að þú talar og kennir rétt og gerir þér engan mannamun heldur kennir Guðs veg í sannleika. 22Leyfist okkur að gjalda keisaranum skatt eða ekki?“
23En hann merkti flærð þeirra og sagði við þá: 24„Sýnið mér denar. Hvers mynd og nafn er skráð á hann?“
Þeir sögðu: „Keisarans.“
25En hann sagði við þá: „Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“
26Og þeir gátu ekki látið hann tala af sér í áheyrn fólksins en undruðust svar hans og þögðu.
Guð lifenda
27Þá komu nokkrir saddúkear, en þeir neita því að upprisa sé til, og sögðu við Jesú: 28„Meistari, Móse segir okkur í ritningunum að deyi maður kvæntur en barnlaus skuli bróðir hans ganga að eiga ekkjuna og vekja honum niðja. 29Nú voru sjö bræður. Sá fyrsti tók sér konu og dó barnlaus. 30Gekk þá annar bróðirinn 31og síðan hinn þriðji að eiga hana og eins allir sjö og létu þeir engin börn eftir sig er þeir dóu. 32Síðast dó og konan. 33Kona hvers þeirra verður hún í upprisunni? Allir sjö höfðu þeir átt hana.“
34Jesús svaraði þeim: „Börn þessarar aldar kvænast og giftast 35en þau sem þykja þess verð að rísa upp frá dauðum og lifa í komandi veröld kvænast hvorki né giftast. 36Þau geta ekki heldur dáið framar, þau eru englum jöfn, þau eru risin frá dauðum og eru börn Guðs. 37En að dauðir rísi upp, það hefur jafnvel Móse sýnt í sögunni um þyrnirunninn er hann kallar Drottin Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs. 38Ekki er hann Guð dauðra, heldur lifenda því að honum lifa allir.“
39Þá sögðu nokkrir fræðimannanna: „Vel mælt, meistari.“ 40En þeir þorðu ekki framar að spyrja hann neins.
Kristur er Drottinn
41Jesús sagði við þá: „Hvernig geta menn sagt að Kristur sé sonur Davíðs? 42Davíð segir sjálfur í Sálmunum:
Drottinn sagði við minn drottin:
Set þig mér til hægri handar
43þangað til ég geri óvini þína að fótskör þinni.
44Davíð kallar hann drottin, hvernig getur hann þá verið sonur hans?“
Viðvörun
45Jesús sagði við lærisveina sína í áheyrn alls fólksins: 46„Varist fræðimennina sem fýsir að ganga í síðskikkjum og er ljúft að láta heilsa sér á torgum, vilja skipa æðsta bekk í samkundum og hefðarsæti í veislum. 47Þeir mergsjúga ekkjur og hafa af þeim heimili þeirra en flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy