YouVersion Logo
Search Icon

Jakobsbréfið 1

1
Þolgæði trú og bæn
1Jakob, þjónn Guðs og Drottins Jesú Krists, heilsar þeim tólf kynkvíslum í dreifingunni.
2Kæri söfnuður,#1.2 Orðrétt: Bræður mínir. álítið það mesta fagnaðarefni er þið ratið í ýmiss konar raunir. 3Þið vitið að trúfesti ykkar vekur þolgæði 4en þolgæðið á að birtast í því sem þið gerið, til þess að þið séuð fullkomin og algjör og ykkur sé í engu ábótavant.
5Ef einhvern mann í ykkar hópi brestur visku, þá biðji hann Guð sem gefur öllum örlátlega og átölulaust og honum mun gefast. 6En hann biðji í trú án þess að efast. Sá sem efast er líkur sjávaröldu er rís og hrekst fyrir vindi. 7Sá maður má eigi ætla að hann fái nokkuð hjá Drottni. 8Hann er tvílyndur og reikull í öllu atferli sínu.
Læging og upphefð
9Sá sem er lágt settur hrósi sér af upphefð sinni, 10auðmaðurinn af allsleysi sínu því að hann mun líða undir lok eins og blóm á engi. 11Sólin kemur upp með steikjandi hita og svíður grasið og blóm þess fellur og fegurð þess verður að engu. Þannig mun og auðugur maður visna upp á vegum sínum.
Guð freistar einskis manns
12Sæll er sá maður sem stenst freistingu og reynist hæfur. Guð mun veita honum kórónu lífsins sem hann hefur heitið þeim er elska hann. 13Enginn má segja er hann verður fyrir freistingu: „Guð freistar mín.“ Hið illa getur eigi freistað Guðs og sjálfur freistar hann einskis manns. 14Það er eigin girnd sem freistar sérhvers manns og dregur hann og tælir. 15Þegar girndin síðan er orðin þunguð elur hún synd og þegar syndin er orðin fullþroskuð leiðir hún til dauða.
16Villist ekki, elskuð systkin.#1.16 Orðrétt: elskaðir bræður mínir. 17Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan að, frá föður ljósanna. Hjá honum er engin umbreyting né flöktandi skuggar. Hann er ávallt hinn sami. 18Hann ákvað að láta orð sannleikans vekja okkur til lífs til þess að við skyldum vera frumgróði sköpunar hans.
Heyrendur og gerendur
19Vitið þetta, elskuð systkin.#1.19 Orðrétt: elskaðir bræður mínir. Hver maður skal vera fljótur til að heyra, seinn til að tala, seinn til reiði. 20Því að reiði manns ávinnur ekki það sem rétt er í augum Guðs. 21Leggið því af hvers konar saurugleik og alla vonsku og takið með hógværð á móti hinu gróðursetta orði er frelsað getur sálir ykkar.
22Verðið gerendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess, ella svíkið þið sjálf ykkur. 23Því að hlýði einhver á orðið án þess að fara eftir því er hann líkur manni er skoðar sjálfan sig í spegli. 24Hann skoðar andlit sitt, fer burt og gleymir jafnskjótt hvernig það var. 25En sá sem skyggnist inn í hið fullkomna lögmál frelsisins og heldur sér við það og gleymir ekki því sem hann heyrir heldur framkvæmir það, verður sæll í verkum sínum.
26Sá sem þykist vera guðrækinn en hefur ekki taumhald á tungu sinni blekkir sjálfan sig og guðrækni hans er fánýt. 27Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði föður er að vitja munaðarlausra og ekkna í þrengingum þeirra og varðveita sjálfan sig óflekkaðan af heiminum.

Currently Selected:

Jakobsbréfið 1: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy