YouVersion Logo
Search Icon

Hebreabréfið 13

13
Lofgjörðarfórn fyrir Guð
1Bróðurkærleikurinn haldist. 2Gleymið ekki gestrisninni því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita. 3Minnist bandingjanna sem væruð þið sambandingjar þeirra. Minnist þeirra er illt líða þar eð þið finnið til eins og þeir.
4Hjúskapurinn sé í heiðri hafður í öllum greinum og hjónasængin sé óflekkuð því að hórkarla og frillulífismenn mun Guð dæma.
5Verið ekki fégráðug en látið ykkur nægja það sem þið hafið. Guð hefur sjálfur sagt: „Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig.“ 6Því getum við örugg sagt:
Drottinn er minn hjálpari,
eigi mun ég óttast.
Hvað geta mennirnir gert mér?
7Minnist leiðtoga ykkar sem Guðs orð hafa til ykkar talað. Virðið fyrir ykkur hvernig ævi þeirra lauk og líkið eftir trú þeirra. 8Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir. 9Látið ekki ýmiss konar framandi kenningar afvegaleiða ykkur. Látið náð Guðs næra hjartað, ekki mat af ýmsu tagi. Þeir sem sinntu slíku höfðu eigi happ af því.
10Við höfum altari og þeir er tjaldbúðinni þjóna hafa ekki leyfi til að neyta þess sem á því er. 11Æðsti presturinn ber blóð dýranna inn í helgidóminn til syndafórnar en hræ þeirra eru brennd fyrir utan herbúðirnar. 12Þess vegna leið Jesús fyrir utan hliðið, til þess að hann helgaði lýðinn með blóði sínu. 13Göngum því til hans út fyrir herbúðirnar og berum vanvirðu hans. 14Því að hér höfum við ekki borg er stendur heldur leitum við hinnar komandi. 15Með hjálp Jesú skulum við því án afláts færa Guði lofgjörðarfórn, ávöxt vara er játa nafn hans. 16En gleymið ekki velgjörðaseminni og hjálpseminni því að slíkar fórnir eru Guði þóknanlegar.
17Hlýðið leiðtogum ykkar og verið þeim eftirlát. Þeir vaka yfir sálum ykkar og eiga að lúka reikning fyrir þær. Verið þeim eftirlát til þess að þeir geti gert það með gleði, ekki andvarpandi. Það væri ykkur til ógagns.
18Biðjið fyrir mér því að ég er þess fullviss að ég hef góða samvisku og vil í öllum greinum breyta vel. 19Ég bið ykkur enn rækilegar um að gera þetta til þess að ég verði brátt aftur sendur til ykkar.
Bæn og kveðjur
20Guð friðarins, sem leiddi Drottin vorn, Jesú, hinn mikla hirði sauðanna,#13.20 Eða: hjarðarinnar. upp frá dauðum með blóði eilífs sáttmála, 21styrki yður í öllu góðu í hlýðni við vilja sinn. Láti hann allt það verða í oss sem honum er þóknanlegt fyrir Jesú Krist. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.
22Ég hef ritað ykkur fáein hvatningarorð, ég bið ykkur, systkin,#13.22 Orðrétt: bræður. að taka þeim vel.
23Þið skuluð vita að bróðir okkar Tímóteus hefur verið látinn laus og ásamt honum mun ég heimsækja ykkur, komi hann bráðum.
24Berið kveðju öllum leiðtogum ykkar og öllum heilögum. Mennirnir frá Ítalíu senda ykkur kveðju.
25Náð sé með yður öllum.

Currently Selected:

Hebreabréfið 13: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy