YouVersion Logo
Search Icon

Hebreabréfið 9

9
Helgidómur á himni og jörðu
1Nú hafði fyrri sáttmálinn líka fyrirskipanir um þjónustuna og jarðneskan helgidóm. 2Tjaldbúð var gerð og í fremri hluta hennar voru bæði ljósastikan, borðið og skoðunarbrauðin og heitir hún „hið heilaga“. 3En bak við annað fortjaldið var tjaldbúð sem hét „hið allra helgasta“. 4Þar var reykelsisaltari úr gulli og sáttmálsörkin sem öll var gulli búin. Í henni var gullkerið með manna í, stafur Arons sem laufgast hafði og sáttmálsspjöldin. 5En yfir henni voru kerúbar dýrðarinnar og breiddu vængina yfir náðarstólinn. En um þetta hvert og eitt ræði ég ekki nú.
6Þannig er þessu fyrir komið. Prestarnir ganga stöðugt inn í fremri tjaldbúðina og annast þjónustu sína. 7Inn í hina innri gengur æðsti presturinn einn, einu sinni á ári, ekki án fórnarblóðs. Það ber hann fram vegna sjálfs sín og fyrir syndir sem fólkið hefur drýgt af vangá. 8Með því sýnir heilagur andi að vegurinn til hins heilaga er enn eigi kunnur orðinn, á meðan fremri tjaldbúðin stendur enn. 9Hún er ímynd þess tíma sem nú er. Hér eru fram bornar gjafir og fórnir sem megna ekki að færa þeim sem innir þjónustuna af hendi vissu um að vera fullkominn. 10Þetta eru aðeins ytri fyrirmæli ásamt reglum um mat og drykk og ýmiss konar þvotta sem mönnum eru á herðar lagðar allt þangað til Guð endurnýjar allt.
11En Kristur er kominn sem æðsti prestur þeirra gæða sem komin eru.#9.11 Annar lesháttur: hinna komandi gæða. Hann gekk inn í gegnum hina stærri og fullkomnari tjaldbúð sem ekki er með höndum gerð, það er að segja er ekki af þessari sköpun. 12Ekki fór hann með blóð hafra og kálfa heldur með eigið blóð inn í hið heilaga í eitt skipti fyrir öll og aflaði eilífrar lausnar. 13Blóð hafra og nauta og askan af kvígu, stráð á menn, er óhreinir hafa gerst, á að helga þá svo að þeir verði hreinir hið ytra. 14Hve miklu fremur mun þá blóð Krists, þegar hann hefur í krafti eilífs anda borið sjálfan sig fram fyrir Guð sem lýtalausa fórn, hreinsa samvisku okkar af dauðum verkum svo að við getum þjónað lifanda Guði.
15Þess vegna er hann meðalgangari nýs sáttmála. Hann dó og bætti að fullu fyrir afbrotin undir fyrri sáttmálanum til þess að þau sem Guð hafði kallað mættu öðlast hina eilífu arfleifð sem heitið var.
16Arfleiðsluskrá#9.16 Sama gríska orðið merkir bæði erfðaskrá og sáttmála. tekur ekki gildi fyrr en sá er dáinn sem gerði hana. 17Hún er óhagganleg þegar um látna er að ræða en er í engu gildi meðan arfleiðandi lifir. 18Þess vegna var ekki heldur hinn fyrri sáttmáli settur án blóðs. 19Þegar Móse hafði kunngjört gjörvöllum lýðnum öll boðorð lögmálsins, þá tók hann blóð kálfanna og hafranna, ásamt vatni og skarlatsrauðri ull og ísópi, og stökkti bæði á sjálfa bókina og allan lýðinn 20og mælti: „Þetta er blóð sáttmálans sem Guð gerði við yður.“ 21Sömuleiðis stökkti hann blóðinu á tjaldbúðina og öll áhöldin við helgiþjónustuna. 22Og samkvæmt lögmálinu er það nálega allt sem hreinsast með blóði og eigi fæst fyrirgefning án úthellingar blóðs.
Í eitt skipti fyrir öll
23Það var því óhjákvæmilegt að eftirmyndir þeirra hluta sem á himnum eru yrðu hreinsaðar með slíkum hætti. En sjálft hið himneska krefst betri fórna en þessara. 24Því að Kristur gekk ekki inn í helgidóm höndum gerðan, eftirmynd hins sanna helgidóms, heldur inn í sjálfan himininn, til þess að birtast nú fyrir augliti Guðs okkar vegna. 25Og ekki gerði hann það til þess að fórna sjálfum sér margsinnis eins og æðsti presturinn sem gengur inn í hið heilaga á ári hverju með annarra blóð. 26Þá hefði hann oft þurft að líða frá grundvöllun heims. En nú hefur hann birst í eitt skipti fyrir öll við endi aldanna til að afmá syndina með fórn sinni. 27Á sama hátt og það liggur fyrir mönnunum eitt sinn að deyja og eftir það að fá sinn dóm, 28þannig var Kristi fórnfært í eitt skipti til þess að bera#9.28 Eða: taka burt. syndir margra, og aftur mun hann birtast, ekki sem syndafórn heldur til að frelsa þá sem bíða hans.

Currently Selected:

Hebreabréfið 9: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy