YouVersion Logo
Search Icon

Hebreabréfið 10

10
Hin eina fórn
1Lögmálið geymir aðeins skugga hins góða sem er í vændum, ekki skýra mynd þess. Þær sömu fórnir sem ár eftir ár eru bornar fram geta því aldrei gert þá fullkomna til frambúðar sem ganga fram fyrir Guð. 2Hefðu ekki dýrkendur Guðs þá annars hætt að fórna ef þeir hefðu hreinsast í eitt skipti fyrir öll og væru sér ekki framar meðvitandi um synd? 3En með þessum fórnum er minnt á syndirnar ár hvert. 4Því að blóð nauta og hafra getur með engu móti numið burt syndir.
5Því er það að Kristur segir þegar hann kemur í heiminn:
Fórn og gjafir hefur þú eigi viljað
en líkama hefur þú búið mér.
6Brennifórnir og syndafórnir geðjuðust þér ekki.
7Þá sagði ég: „Sjá, ég er kominn til að gera vilja þinn, Guð minn,
eins og ritað er í bókinni um mig.“
8Fyrst segir hann: „Fórnir og gjafir og brennifórnir og syndafórnir hefur þú eigi viljað og eigi geðjaðist þér að þeim.“ En það eru einmitt þær sem fram eru bornar samkvæmt lögmálinu. 9Síðan segir hann: „Sjá, ég er kominn til að gera vilja þinn.“ Hann afnemur hið fyrra og staðfestir hið síðara. 10Þannig gerði hann það sem Guð vildi og þess vegna erum við helguð orðin að hann fórnaði sjálfum sér í eitt skipti fyrir öll.
11Sérhver prestur er hvern dag bundinn við helgiþjónustu sína og ber fram margsinnis hinar sömu fórnir. Þær geta þó aldrei afmáð syndir. 12En Jesús bar fram eina fórn fyrir syndirnar og settist um aldur við hægri hönd Guðs 13og bíður þess síðan að óvinir hans verði gerðir að fótskör hans. 14Því að með einni fórn hefur hann um aldur fullkomnað þau er helguð verða.
15Heilagur andi vitnar einnig fyrir okkur. Fyrst segir hann:
16Þetta er sáttmálinn er ég mun gera við þá
eftir þá daga, segir Drottinn.
Lög mín vil ég leggja í hjörtu þeirra
og í hugskot þeirra vil ég rita þau.
17Síðan segir hann:
Ég mun aldrei framar minnast synda þeirra eða lögmálsbrota.
18En þar sem syndirnar eru fyrirgefnar þarf ekki framar fórn fyrir synd.
Nýr og lifandi vegur
19Vegna þess að Jesús úthellti blóði sínu megum við nú, systkin,#10.19 Orðrétt: bræður. með djörfung ganga inn í hið heilaga. 20Þangað vígði hann okkur veginn, nýjan veg lífsins inn í gegnum fortjaldið sem er líkami hans. 21Við höfum mikinn prest yfir húsi Guðs. 22Göngum því fram fyrir Guð með einlægum hjörtum, í öruggu trúartrausti, með hjörtum sem hreinsuð hafa verið og eru laus við meðvitund um synd, og með líkömum sem laugaðir hafa verið í hreinu vatni. 23Höldum fast við játningu vonar okkar án þess að hvika því að trúr er sá sem fyrirheitið hefur gefið. 24Gefum gætur hvert að öðru og hvetjum hvert annað til kærleika og góðra verka. 25Vanrækið ekki safnaðarsamkomur ykkar eins og sumra er siður heldur uppörvið hvert annað og það því fremur sem þið sjáið að dagurinn færist nær.
26Því að ef við syndgum af ásettu ráði, eftir að hafa öðlast þekkingu á sannleikanum, þá er úr því enga fórn að fá fyrir syndirnar 27heldur er það óttaleg bið eftir dómi og heitum eldi sem eyða mun andstæðingum Guðs. 28Sá er að engu hefur lögmál Móse verður vægðarlaust líflátinn ef tveir eða þrír vottar bera. 29Hve miklu þyngri hegning ætlið þið þá ekki að sá muni vera talinn verðskulda er fyrirlítur son Guðs og metur einskis blóðið, sem sáttmálinn var grundvallaður á, og smánar anda náðarinnar? 30Við þekkjum þann er sagt hefur: „Mín er hefndin, ég mun endurgjalda.“ Og á öðrum stað: „Drottinn mun dæma lýð sinn.“ 31Óttalegt er að falla í hendur lifanda Guðs.
32Minnist fyrri daga, er þið höfðuð tekið á móti ljósinu, hvernig þið stóðust miklar þrengingar. 33Það var ýmist að þið sjálf, smánuð og aðþrengd, voruð höfð að augnagamni eða þá hitt að þið tókuð þátt í kjörum þeirra er áttu slíku að sæta. 34Þið þjáðust með bandingjum og tókuð því með gleði er þið voruð rænd eignum ykkar því að þið vissuð að þið áttuð sjálf betri eign og varanlega. 35Varpið því eigi frá ykkur djörfung ykkar. Hún mun hljóta mikla umbun. 36Þolgæðis hafið þið þörf, til þess að þið gerið Guðs vilja og öðlist fyrirheitið. 37Því að:
Innan harla skamms tíma
mun sá koma sem koma á og ekki dvelst honum.
38Minn réttláti mun lifa fyrir trúna
en skjóti hann sér undan
þá hefur sála mín ekki velþóknun á honum.
39En við skjótum okkur ekki undan og glötumst heldur trúum við og frelsumst.

Currently Selected:

Hebreabréfið 10: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy