YouVersion Logo
Search Icon

Postulasagan 6

6
Nýir þjónar
1Á þessum dögum, er lærisveinum fjölgaði, fóru grískumælandi menn að kvarta yfir því að hebreskir settu ekkjur þeirra hjá við daglega úthlutun. 2Hinir tólf kölluðu þá lærisveinahópinn saman og sögðu: „Ekki hæfir að við hverfum frá boðun Guðs orðs til að þjóna fyrir borðum. 3Finnið því, systkin,#6.3 Orðrétt: bræður. sjö vel kynnta menn úr ykkar hópi sem fullir eru anda og visku. Munum við setja þá yfir þetta starf. 4En við munum helga okkur bæninni og þjónustu orðsins.“ 5Öll samkoman gerði góðan róm að máli þeirra og kaus hún Stefán, sem var gagntekinn af trú og heilögum anda, Filippus, Prókorus, Níkanor, Tímon, Parmenas og Nikolás frá Antíokkíu sem tekið hafði gyðingatrú. 6Söfnuðurinn lét leiða þá fram fyrir postulana sem báðust fyrir og lögðu hendur yfir þá.
7Orð Guðs breiddist út og tala lærisveinanna í Jerúsalem fór stórum vaxandi. Einnig snerist mikill fjöldi presta til hlýðni við trúna.
Stefán tekinn höndum
8Stefán var fullur af náð og krafti og gerði undur og tákn mikil meðal fólksins. 9Þá komu til nokkrir menn úr svonefndri Leysingjasamkundu. Þeir voru frá Kýrene og Alexandríu en aðrir frá Kilikíu og Asíu og tóku að þrátta við Stefán. 10En þeir gátu ekki staðið gegn þeirri visku og anda sem hann talaði af. 11Þá fengu þeir menn nokkra til að segja: „Við höfum heyrt hann tala lastmæli gegn Móse og Guði.“ 12Þeir æstu upp fólkið, öldungana og fræðimennina og þeir veittust að honum, gripu hann og færðu hann fyrir ráðið. 13Þá leiddu þeir fram ljúgvotta er sögðu: „Þessi maður talar sífellt gegn þessum heilaga stað og lögmálinu. 14Við höfum heyrt hann segja að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum sem Móse hefur sett okkur.“ 15Allir sem í ráðinu sátu störðu á hann og sáu að ásjóna hans var sem engils ásjóna.

Currently Selected:

Postulasagan 6: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy