YouVersion Logo
Search Icon

Postulasagan 5

5
Ananías og Saffíra
1En maður nokkur, Ananías að nafni, seldi ásamt Saffíru, konu sinni, eign 2og dró undan af verðinu með vitund konu sinnar en kom með nokkuð af því og lagði fyrir fætur postulanna. 3En Pétur mælti: „Ananías, hví fyllti Satan hjarta þitt svo að þú laugst að heilögum anda og dróst undan af verði lands þíns? 4Var landið ekki þitt meðan þú áttir það og var ekki andvirði þess á þínu valdi? Hvernig gastu þá látið þér hugkvæmast slíkt tiltæki? Ekki hefur þú logið að mönnum heldur Guði.“ 5Þegar Ananías heyrði þetta féll hann niður, gaf upp öndina og miklum ótta sló á alla þá sem heyrðu. 6En ungu mennirnir stóðu upp og bjuggu um hann, báru hann út og jörðuðu.
7Að liðnum svo sem þrem stundum kom kona hans inn og vissi ekki hvað við hafði borið. 8Þá spurði Pétur hana: „Seg mér, selduð þið jörðina fyrir þetta verð?“
En hún svaraði: „Já, fyrir þetta verð.“
9Pétur mælti þá við hana: „Hvernig gátuð þið komið ykkur saman um að storka anda Drottins? Þú heyrir við dyrnar fótatak þeirra sem greftruðu mann þinn. Þeir munu bera þig út.“ 10Jafnskjótt féll hún niður við fætur hans og gaf upp öndina. Ungu mennirnir komu inn, fundu hana andaða, báru út og jörðuðu hjá manni hennar. 11Og miklum ótta sló á allan söfnuðinn og alla sem heyrðu þetta.
Tákn og undur
12Fyrir hendur postulanna gerðust mörg tákn og undur meðal fólksins. Allur söfnuðurinn kom einum huga saman í súlnagöngum Salómons. 13Fólkið virti þá mikils en enginn þorði að umgangast þá. 14Og enn fleiri karlar og konur trúðu á Drottin og bættust við söfnuðinn. 15Menn báru jafnvel sjúka út á strætin og lögðu þá á rekkjur og börur ef verða mætti, er Pétur gengi hjá, að alltént skugginn af honum félli á einhvern þeirra. 16Einnig kom fjöldi fólks frá borgunum umhverfis Jerúsalem og flutti með sér sjúka menn og þjáða af óhreinum öndum. Þeir læknuðust allir.
Postular ofsóttir
17Þá hófst æðsti presturinn handa og saddúkeaflokkurinn sem fylgdi honum. Fullir ofstækis 18létu þeir taka postulana höndum og varpa í fangelsið. 19En engill Drottins opnaði um nóttina dyr fangelsisins, leiddi þá út og sagði: 20„Farið í helgidóminn og flytjið fólkinu öll þessi lífsins orð.“ 21Þeir hlýddu og fóru í dögun í helgidóminn og kenndu.
Nú kom æðsti presturinn og hans menn, kölluðu saman ráðið, alla öldunga Ísraels, og sendu þjóna til fangelsisins að sækja postulana. 22Þeir komu í fangelsið og fundu þá ekki, sneru aftur og skýrðu svo frá: 23„Fangelsið fundum við að öllu tryggilega læst og varðmennirnir stóðu fyrir dyrum en er við lukum upp fundum við engan inni.“ 24Þegar varðforingi helgidómsins og æðstu prestarnir heyrðu þetta urðu þeir ráðþrota og skildu ekki hvað var að gerast. 25En þá kom maður og bar þeim þessa frétt: „Mennirnir, sem þið settuð í fangelsið, standa í helgidóminum og eru að kenna fólkinu.“ 26Þá fór varðforinginn með þjónunum og sótti þá. Beittu þeir samt ekki hörku því þeir óttuðust að fólkið grýtti þá.
27Þegar þeir voru komnir með þá leiddu þeir þá fram fyrir ráðið og æðsti presturinn tók að yfirheyra þá og sagði: 28„Við bönnuðum ykkur stranglega að kenna í þessu nafni og nú hafið þið fyllt Jerúsalem með kenningu ykkar og viljið að blóð þessa manns bitni á okkur.“ 29En Pétur og hinir postularnir svöruðu: „Framar ber að hlýða Guði en mönnum. 30Guð forfeðra vorra hefur upp vakið Jesú sem þið hengduð á tré og tókuð af lífi. 31Guð hefur hafið hann sér til hægri handar#5.31 Eða: með hægri hendi sinni. og gert hann að höfðingja og frelsara til að veita Ísrael afturhvarf og fyrirgefningu synda sinna. 32Við erum vottar alls þessa og heilagur andi sem Guð hefur gefið þeim er honum hlýða.“
33Þegar ráðsherrarnir heyrðu þetta fylltust þeir bræði og hugðust deyða þá. 34Reis þá upp í ráðinu farísei nokkur, Gamalíel að nafni, kennari í lögmálinu, vel metinn af öllum. Hann bauð að mennirnir væru látnir fara út stundarkorn. 35Síðan sagði hann: „Ísraelsmenn, athugið vel hvað þið gerið við þessa menn. 36Ekki alls fyrir löngu kom Þevdas fram og þóttist vera eitthvað. Hann aðhylltust um fjögur hundruð manns. En hann var drepinn og allir þeir sem fylgdu honum tvístruðust og hurfu. 37Eftir hann kom fram Júdas frá Galíleu á dögum skrásetningarinnar og sneri fólki til fylgis við sig. Hann fórst líka og þeir dreifðust allir sem fylgdu honum. 38Og nú segi ég ykkur: Látið þessa menn eiga sig og sleppið þeim. Sé þetta ráð eða verk frá mönnum verður það að engu 39en sé það frá Guði, þá megnið þið ekki að yfirbuga þá. Eigi má það verða að þið berjist við sjálfan Guð.“
Þeir féllust á mál hans, 40kölluðu á postulana, húðstrýktu þá, bönnuðu þeim að tala í Jesú nafni og létu þá síðan lausa. 41Þeir fóru burt frá ráðinu, glaðir yfir því að þeir höfðu verið virtir þess að þola háðung vegna nafns Jesú. 42Létu þeir eigi af að kenna dag hvern í helgidóminum og í heimahúsum og boða fagnaðarerindið um að Jesús sé Kristur.

Currently Selected:

Postulasagan 5: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy