YouVersion Logo
Search Icon

Sálmarnir 105

105
1Þakkið Drottni, ákallið nafn hans,
gerið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna.
2Syngið honum lof, leikið fyrir hann,
segið frá öllum máttarverkum hans.
3Hrósið yður af hans heilaga nafni,
hjarta þeirra sem leita Drottins gleðjist.
4Leitið Drottins og máttar hans,
leitið sífellt eftir augliti hans.
5Minnist dásemdarverkanna sem hann vann,
tákna hans og dómanna sem hann kvað upp,
6þér niðjar Abrahams, þjóns hans,
synir Jakobs sem hann útvaldi.
7Hann er Drottinn, Guð vor,
um víða veröld gilda boð hans.
8Hann minnist að eilífu sáttmála síns,
fyrirheitanna sem hann gaf þúsund kynslóðum,
9sáttmálans sem hann gerði við Abraham
og eiðsins sem hann sór Ísak
10og setti sem lög fyrir Jakob,
ævarandi sáttmála fyrir Ísrael.
11Hann sagði: „Þér fæ ég Kanaansland,
það skal vera erfðahlutur yðar,“
12þegar þeir voru fámennur hópur
og bjuggu þar sem fáliðaðir útlendingar.
13Þeir reikuðu frá einni þjóð til annarrar,
frá einu konungsríki til annars.
14Hann leið engum að kúga þá
en hegndi konungum þeirra vegna.
15„Snertið eigi mína smurðu
og gerið eigi spámönnum mínum mein.“
16Þegar hann kallaði hungur yfir landið,
svipti þá öllum birgðum brauðs,#105.16 Orðrétt: braut sérhvern staf brauðs.
17sendi hann mann á undan þeim.
Jósef var seldur sem þræll,
18þeir særðu fætur hans með fjötrum,
settu háls hans í járn
19þar til orð hans rættust
og orð Drottins sönnuðu mál hans.
20Konungur sendi boð og lét leysa hann,
drottnari þjóðanna leysti fjötra hans,
21gerði hann herra húss síns
og stjórnanda allra eigna sinna
22svo að hann gæti leiðbeint hirðmönnum að vild
og kennt öldungum hans speki.
23Ísrael kom til Egyptalands,
Jakob varð gestur í landi Kams.
24Drottinn jók stórum frjósemi lýðs síns,
gerði hann fjölmennari en fjandmenn hans.
25Hann sneri hjarta Egypta til haturs á lýð sínum,
til lævísi gegn þjónum sínum.
26Hann sendi Móse, þjón sinn,
og Aron sem hann hafði valið sér.
27Þeir gerðu tákn hans í Egyptalandi
og undur í landi Kams.
28Hann sendi sorta og myrkvaði landið
en þeir þrjóskuðust gegn boðum hans.
29Hann breytti vötnum þeirra í blóð
og drap fiska þeirra,
30land þeirra varð kvikt af froskum
alla leið inn í herbergi konungs.
31Hann bauð og þá komu flugur,
mývargur um allt land þeirra.
32Hann sendi hagl fyrir regn,
logandi eld yfir land þeirra,
33sló niður vínvið þeirra og fíkjutré
og braut niður trén í landi þeirra.
34Hann bauð og engisprettur komu,
lirfur sem ekki varð tölu á komið,
35sem átu allar jurtir í landi þeirra,
allan ávöxt á ökrum þeirra.
36Hann laust alla frumburði í landi þeirra til bana,
frumgróða karlmennsku þeirra.
37Síðan leiddi hann þá út með silfri og gulli
og enginn af ættbálkum hans hrasaði.
38Egyptar glöddust yfir brottför þeirra
því að ótti var kominn yfir þá.
39Hann breiddi út ský sem hlíf
og eld til að lýsa um nætur.
40Þeir báðu, þá sendi hann lynghænsn
og mettaði þá með brauði af himni.
41Hann klauf klett og vatn vall fram,
rann sem fljót um skrælnað land.
42Þar sem hann minntist síns heilaga heits
við Abraham þjón sinn
43leiddi hann lýð sinn með gleði,
sína útvöldu með fögnuði.
44Hann gaf þeim lönd annarra þjóða,
þeir eignuðust ávöxt af erfiði þjóðanna
45svo að þeir héldu lög hans
og varðveittu boðorð hans.
Hallelúja.

Currently Selected:

Sálmarnir 105: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy