YouVersion Logo
Search Icon

Matteusarguðspjall 16

16
Vildu freista hans
1Þá komu farísear og saddúkear, vildu freista Jesú og báðu hann að sýna sér tákn af himni. 2Jesús svaraði þeim: „Að kvöldi segið þið: Það verður góðviðri því að roði er á lofti. 3Og að morgni: Illviðri í dag, himinninn er rauður og þungbúinn. Útlit loftsins kunnið þið að ráða en ekki tákn tímanna.#16.3 Orð Jesú í 2. og 3. versi vantar í sum handrit. 4Vond og ótrú kynslóð heimtar tákn en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar.“
Síðan skildi hann við þá og fór.
Varasamt súrdeig
5Þegar lærisveinarnir fóru yfir um vatnið höfðu þeir gleymt að taka með sér brauð. 6Jesús sagði við þá: „Gætið ykkar, varist súrdeig farísea og saddúkea.“
7En lærisveinarnir ræddu sín á milli að þeir hefðu ekki tekið brauð.
8Jesús varð þess vís og sagði: „Hvað eruð þið að tala um það, trúlitlir menn, að þið hafið ekki brauð? 9Skynjið þið ekki enn? Minnist þið ekki brauðanna fimm handa fimm þúsundum og hve margar körfur þið tókuð saman? 10Eða brauðanna sjö handa fjórum þúsundum og hve margar körfur þið tókuð saman? 11Hvernig má það vera að þið skynjið ekki að ég var ekki að tala um brauð við ykkur? Varist súrdeig farísea og saddúkea.“
12Þá skildu þeir að hann hafði ekki talað um að varast súrdeig í brauði heldur kenningu farísea og saddúkea.
Játning Péturs
13Þegar Jesús kom í byggðir Sesareu Filippí spurði hann lærisveina sína: „Hvern segja menn Mannssoninn vera?“
14Þeir svöruðu: „Sumir Jóhannes skírara, aðrir Elía og enn aðrir Jeremía eða einn af spámönnunum.“
15Hann spyr: „En þið, hvern segið þið mig vera?“
16Símon Pétur svarar: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.“
17Þá segir Jesús við hann: „Sæll ert þú, Símon Jónasson! Enginn maður#16.17 Orðrétt: Hold og blóð. hefur opinberað þér þetta heldur faðir minn í himninum. 18Og ég segi þér: Þú ert Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína og máttur heljar mun ekki á henni sigrast. 19Ég mun fá þér lykla himnaríkis og hvað sem þú bindur á jörðu mun bundið á himnum og hvað sem þú leysir á jörðu mun leyst á himnum.“
20Þá lagði hann ríkt á við lærisveinana að segja engum að hann væri Kristur.
Dauði og upprisa
21Upp frá þessu tók Jesús að skýra lærisveinum sínum frá því að hann ætti að fara til Jerúsalem og líða þar mikið af völdum öldunga, æðstu presta og fræðimanna og verða líflátinn en rísa upp á þriðja degi.
22En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann: „Guð forði þér frá því, Drottinn, þetta má aldrei fyrir þig koma.“
23Jesús sneri sér við og mælti til Péturs: „Vík frá mér, Satan, þú vilt bregða fæti fyrir mig, þú hugsar ekki um það sem Guðs er heldur það sem manna er.“
24Þá mælti Jesús við lærisveina sína: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. 25Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu mín vegna mun finna það. 26Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og glata sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? 27Mannssonurinn mun koma í dýrð föður síns með englum sínum og þá mun hann gjalda sérhverjum eftir breytni hans. 28Sannlega segi ég ykkur: Nokkrir þeirra sem hér standa munu ekki mæta dauða sínum fyrr en þeir sjá Mannssoninn koma í ríki sínu.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy