YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 23

23
Fyrir Pílatusi
1Þá stóð upp allur skarinn og færði Jesú fyrir Pílatus. 2Þeir tóku að ákæra hann og sögðu: „Við höfum komist að raun um að þessi maður leiðir þjóð okkar afvega, hann bannar að gjalda keisaranum skatt og segist sjálfur vera Kristur, konungur.“
3Pílatus spurði hann þá: „Ert þú konungur Gyðinga?“
Jesús svaraði: „Það eru þín orð.“
4Pílatus sagði við æðstu prestana og fólkið: „Enga sök finn ég hjá þessum manni.“
5En þeir urðu því ákafari og sögðu: „Hann æsir upp lýðinn með því sem hann kennir í allri Júdeu, hann byrjaði í Galíleu og er nú kominn hingað.“
Fyrir Heródesi
6Þegar Pílatus heyrði þetta spurði hann hvort maðurinn væri Galílei. 7Og er hann varð þess vís að hann var úr umdæmi Heródesar sendi hann hann til Heródesar er þá var og í Jerúsalem á þeim dögum.
8En Heródes varð næsta glaður er hann sá Jesú því hann hafði lengi langað að sjá hann þar eð hann hafði heyrt frá honum sagt. Vænti hann nú að sjá hann gera eitthvert tákn. 9Hann spurði Jesú á marga vegu en hann svaraði honum engu. 10Æðstu prestarnir og fræðimennirnir stóðu þar og ásökuðu hann harðlega. 11En Heródes óvirti hann og spottaði ásamt hermönnum sínum, lagði yfir hann skínandi klæði og sendi hann aftur til Pílatusar. 12Á þeim degi urðu þeir Heródes og Pílatus vinir en áður var fjandskapur með þeim.
Dæmdur til dauða
13Pílatus kallaði nú saman æðstu prestana, höfðingjana og fólkið 14og mælti: „Þið hafið fært mér þennan mann og sagt hann leiða fólkið afvega. Nú hef ég yfirheyrt manninn í ykkar viðurvist en enga þá sök fundið hjá honum er þið ákærið hann um. 15Ekki heldur Heródes því hann sendi hann aftur til okkar. Ljóst er að hann hefur ekkert það drýgt er dauða sé vert. 16Ætla ég því að hirta hann og láta lausan.“ [17En skylt var honum að gefa þeim lausan einn bandingja á hverri hátíð.]#23.17 Vantar í sum handrit.
18En þeir æptu allir: „Burt með hann, gefðu okkur Barabbas lausan!“ 19En honum hafði verið varpað í fangelsi fyrir upphlaup nokkurt sem varð í borginni og manndráp.
20Pílatus talaði enn til þeirra og vildi láta Jesú lausan. 21En þeir æptu á móti: „Krossfestu, krossfestu hann!“
22Í þriðja sinn sagði Pílatus við þá: „Hvað illt hefur þá þessi maður gert? Enga dauðasök hef ég fundið hjá honum. Ætla ég því að hirta hann og láta hann lausan.“
23En þeir sóttu á með ópi miklu og heimtuðu að hann yrði krossfestur. Og þeir höfðu sitt fram.
24Þá ákvað Pílatus að kröfu þeirra skyldi fullnægt. 25Hann gaf lausan þann er þeir báðu um og varpað hafði verið í fangelsi fyrir upphlaup og manndráp en framseldi þeim Jesú að þeir færu með hann sem þeir vildu.
Krossfestur
26Þegar þeir leiddu Jesú út tóku þeir Símon nokkurn frá Kýrene, er kom utan úr sveit, og lögðu krossinn á hann að hann bæri hann eftir Jesú.
27En Jesú fylgdi mikill fjöldi fólks og kvenna er hörmuðu hann og grétu. 28Jesús sneri sér að þeim og mælti: „Jerúsalemsdætur, grátið ekki yfir mér en grátið yfir sjálfum ykkur og börnum ykkar. 29Því þeir dagar koma er menn munu segja: Sælar eru óbyrjur og þau móðurlíf er aldrei fæddu og þau brjóst sem engan nærðu. 30Þá munu menn segja við fjöllin: Hrynjið yfir okkur! og við hálsana: Hyljið okkur! 31Því að sé þetta gert við hið græna tré, hvað mun þá verða um hið visna?“
32Með Jesú voru og færðir til lífláts aðrir tveir sem voru illvirkjar. 33Og er þeir komu til þess staðar sem heitir Hauskúpa krossfestu þeir hann þar og illvirkjana, annan til hægri handar, hinn til vinstri. 34Þá sagði Jesús: „Faðir, fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gera.“#23.34 Orðin „Þá sagði Jesús … hvað þeir gera“ vantar í sum handrit.
En þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér. 35Fólkið stóð og horfði á og höfðingjarnir gerðu gys að honum og sögðu: „Öðrum bjargaði hann, bjargi hann nú sjálfum sér ef hann er Kristur Guðs, hinn útvaldi.“
36Eins hæddu hann hermennirnir, komu og báru honum edik 37og sögðu: „Ef þú ert konungur Gyðinga, þá bjargaðu sjálfum þér.“
38Yfirskrift var yfir honum: ÞESSI ER KONUNGUR GYÐINGA.
39Annar þeirra illvirkja sem krossfestir voru hæddi hann og sagði: „Ert þú ekki Kristur? Bjargaðu sjálfum þér og okkur!“
40En hinn ávítaði hann og sagði: „Hræðist þú ekki einu sinni Guð og ert þó undir sama dómi? 41Við erum það með réttu og fáum makleg gjöld fyrir gerðir okkar en þessi hefur ekkert illt aðhafst.“ 42Þá sagði hann: „Jesús, minnst þú mín þegar þú kemur í ríki þitt!“
43Og Jesús sagði við hann: „Sannlega segi ég þér: Í dag skaltu vera með mér í Paradís.“
Faðir, í þínar hendur
44Og nú var nær hádegi#23.44 Orðrétt: um sjöttu stund, þ.e. kl. tólf á hádegi. og myrkur varð um allt land til nóns#23.44 Orðrétt: til níundu stundar, þ.e. kl. Þrjú eftir hádegi. 45því sólin missti birtu sinnar. En fortjald musterisins rifnaði sundur í miðju. 46Þá kallaði Jesús hárri röddu: „Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn!“ Og er hann hafði þetta mælt gaf hann upp andann.
47Þegar hundraðshöfðinginn sá það er við bar vegsamaði hann Guð og sagði: „Sannarlega var þessi maður réttlátur.“
48Og fólkið allt, sem komið hafði saman að horfa á, sá nú hvað gerðist og barði sér á brjóst og hvarf frá. 49En vinir hans allir sem og konurnar, er fylgdu honum frá Galíleu, stóðu álengdar og horfðu á þetta.
Lagður í gröf
50Maður er nefndur Jósef. Hann var ráðsherra, góður maður og réttvís 51og hafði ekki samþykkt ráð þeirra né athæfi. Hann var frá Arímaþeu, borg í Júdeu, og vænti Guðs ríkis. 52Hann gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú, 53tók hann síðan ofan, sveipaði línklæði og lagði í gröf, höggna í klett, og hafði þar enginn verið áður lagður. 54Það var aðfangadagur og hvíldardagurinn fór í hönd.
55Konur þær er komið höfðu með Jesú frá Galíleu fylgdu eftir og sáu gröfina og hvernig líkami hans var lagður. 56Þær sneru aftur og bjuggu ilmjurtir og smyrsl.
Hvíldardaginn héldu þær kyrru fyrir samkvæmt boðorðinu.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy