YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 2

2
Lagður í jötu
1En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. 2Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. 3Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.
4Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, 5að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni sem var þunguð. 6En meðan þau voru þar kom sá tími er hún skyldi verða léttari. 7Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu af því að eigi var rúm fyrir þau í gistihúsi.
Frelsari fæddur
8En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. 9Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir 10en engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: 11Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. 12Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“
13Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu:
14Dýrð sé Guði í upphæðum
og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.
15Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himins sögðu hirðarnir sín á milli: „Förum beint til Betlehem að sjá það sem gerst hefur og Drottinn hefur kunngjört okkur.“ 16Og þeir fóru með skyndi og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið sem lá í jötu. 17Þegar þeir sáu það skýrðu þeir frá því er þeim hafði verið sagt um barn þetta. 18Og allir sem heyrðu undruðust það er hirðarnir sögðu þeim. 19En María geymdi allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það. 20Og hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu Guð og lofuðu hann fyrir það sem þeir höfðu heyrt og séð en allt var það eins og þeim hafði verið sagt.
Látinn heita Jesús
21Þegar átta dagar voru liðnir skyldi umskera hann og var hann látinn heita Jesús eins og engillinn nefndi hann áður en hann var getinn í móðurlífi.
Jesús færður Drottni
22En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni, 23en svo er ritað í lögmáli Drottins: „Allt karlkyns, er fyrst fæðist af móðurlífi, skal helgað Drottni,“ 24og til að bera fram fórn, eins og segir í lögmáli Drottins, „tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur“.
Símeon
25Þá var í Jerúsalem maður er Símeon hét. Hann var réttlátur og guðrækinn og vænti þess að Guð frelsaði Ísrael. Heilagur andi var yfir honum 26og hafði hann vitrað honum að hann skyldi ekki deyja fyrr en hann hefði séð Krist Drottins. 27Að leiðsögn andans kom hann í helgidóminn. Og er foreldrarnir færðu þangað sveininn Jesú til að fara með hann eftir venju lögmálsins 28tók Símeon hann í fangið, lofaði Guð og sagði:
29Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara
eins og þú hefur heitið mér
30því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt,
31sem þú hefur fyrirbúið í augsýn allra lýða,
32ljós til opinberunar heiðingjum
og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
33Faðir hans og móðir undruðust það er sagt var um hann. 34En Símeon blessaði þau og sagði við Maríu móður hans: „Þessi sveinn er settur til falls og til viðreisnar mörgum í Ísrael. Hann verður tákn sem menn munu rísa gegn.
35Sjálf munt þú sverði níst í sálu þinni. Þannig munu hugsanir margra hjartna verða augljósar.“
Anna
36Og þar var Anna spákona Fanúelsdóttir af ætt Assers, kona háöldruð. Hún hafði lifað sjö ár með manni sínum þegar hann dó 37og síðan verið ekkja fram á áttatíu og fjögurra ára aldur. Hún vék eigi úr helgidóminum en þjónaði Guði nótt og dag með föstum og bænahaldi. 38Hún kom að á sömu stundu og lofaði Guð. Og hún talaði um barnið við alla sem væntu lausnar Jerúsalem.
39Og er þau höfðu lokið öllu, sem lögmál Drottins bauð, sneru þau aftur til Galíleu, til borgar sinnar Nasaret. 40En sveinninn óx og styrktist, fylltur visku, og náð Guðs var yfir honum.
Jesús tólf ára
41Foreldrar Jesú ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni. 42Þegar hann var tólf ára fóru þau upp þangað eins og þau voru vön og tóku Jesú með sér. 43Þau voru þar út hátíðisdagana. En þegar þau sneru heimleiðis varð sveinninn Jesús eftir í Jerúsalem og vissu foreldrar hans það eigi. 44Þau hugðu að hann væri með samferðafólkinu og fóru eina dagleið og leituðu hans meðal frænda og kunningja. 45En þau fundu hann ekki og sneru þá aftur til Jerúsalem og leituðu hans.
46Eftir þrjá daga fundu þau hann í helgidóminum. Þar sat hann mitt á meðal lærifeðranna, hlýddi á þá og spurði þá. 47En alla, sem heyrðu til hans, furðaði stórum á skilningi hans og andsvörum. 48Og er þau sáu hann þar brá þeim mjög og móðir hans sagði við hann: „Barn, hví gerðir þú okkur þetta? Við faðir þinn höfum leitað þín harmþrungin.“
49Og hann sagði við þau: „Hvers vegna voruð þið að leita að mér? Vissuð þið ekki að mér ber að vera í húsi föður míns?“ 50En þau skildu ekki það er hann talaði við þau.
51Og Jesús fór heim með þeim og kom til Nasaret og var þeim hlýðinn. En móðir hans geymdi allt þetta í hjarta sér. 52Og Jesús þroskaðist að visku og vexti og náð hjá Guði og mönnum.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy