YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 18

18
Eigi þreytast að biðja
1Þá sagði Jesús þeim dæmisögu um það hvernig þeir skyldu stöðugt biðja og eigi þreytast: 2„Í borg einni var dómari sem hvorki óttaðist Guð né skeytti um nokkurn mann. 3Í sömu borg var ekkja sem kom einlægt til hans og sagði: Lát þú mig ná rétti á mótstöðumanni mínum. 4Það vildi hann ekki lengi vel. En að lokum sagði hann við sjálfan sig: Ekki óttast ég Guð að sönnu né skeyti um nokkurn mann. 5En þessi ekkja lætur mig aldrei í friði. Því vil ég rétta hlut hennar áður en hún gerir út af við mig með nauði sínu.“
6Og Drottinn mælti: „Heyrið hvað rangláti dómarinn segir. 7Mun Guð þá ekki rétta hlut sinna útvöldu sem hrópa til hans dag og nótt? Mun hann draga að hjálpa þeim? 8Ég segi yður: Hann mun skjótt rétta hlut þeirra. En mun Mannssonurinn finna trúna á jörðu þegar hann kemur?“
Farísei og tollheimtumaður
9Jesús sagði líka dæmisögu þessa við nokkra þá er treystu því að sjálfir væru þeir réttlátir en fyrirlitu aðra: 10„Tveir menn fóru upp í helgidóminn að biðjast fyrir. Annar var farísei, hinn tollheimtumaður.
11Faríseinn sté fram og baðst þannig fyrir: Guð, ég þakka þér að ég er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, ranglátir, hórkarlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður. 12Ég fasta tvisvar í viku og geld tíund af öllu sem ég eignast.
13En tollheimtumaðurinn stóð langt frá og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himins heldur barði sér á brjóst og sagði: Guð, vertu mér syndugum líknsamur! 14Ég segi yður: Tollheimtumaðurinn fór heim til sín sáttur við Guð,#18.14 Orðrétt: fór réttlættur heim til sín. hinn ekki, því að hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.“
Leyfið börnunum að koma til mín
15Menn færðu og til hans ungbörnin svo að hann snerti þau. Lærisveinarnir sáu það og átöldu þá. 16En Jesús kallaði þau til sín og mælti: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er Guðs ríki. 17Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn mun aldrei inn í það koma.“
Auðugur höfðingi
18Höfðingi nokkur spurði Jesú: „Góði meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“
19Jesús sagði við hann: „Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn. 20Þú kannt boðorðin: Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, heiðra föður þinn og móður.“
21Hann sagði: „Alls þessa hef ég gætt frá æsku.“
22Þegar Jesús heyrði þetta sagði hann við hann: „Enn er þér eins vant: Sel allt sem þú átt og skipt meðal fátækra og munt þú fjársjóð eiga á himnum. Kom síðan og fylg mér.“ 23En er hann heyrði þetta varð hann hryggur við enda auðugur mjög.
24Jesús sá það og sagði: „Hve torvelt er þeim sem auðinn hafa að ganga inn í Guðs ríki. 25Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“
26En þeir sem á hlýddu spurðu: „Hver getur þá orðið hólpinn?“
27Hann mælti: „Það sem mönnum er um megn, það megnar Guð.“
Við yfirgáfum allt
28Þá sagði Pétur: „Við yfirgáfum allt sem við áttum og fylgdum þér.“
29Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég yður að enginn hefur yfirgefið heimili, konu, bræður, foreldra eða börn vegna Guðs ríkis 30án þess að hann fái margfalt aftur á þessum tíma og í hinum komandi heimi eilíft líf.“
Allt mun koma fram
31Jesús tók þá tólf til sín og sagði við þá: „Nú förum við upp til Jerúsalem og mun allt það koma fram sem spámennirnir hafa skrifað um Mannssoninn. 32Hann verður framseldur heiðingjum. Þeir munu hæða hann, misþyrma honum og hrækja á hann. 33Þeir munu húðstrýkja hann og lífláta en á þriðja degi mun hann upp rísa.“
34En þeir skildu ekkert af þessu, orð þessi voru þeim hulin og þeir skynjuðu ekki það sem sagt var.
Blindur maður
35Svo bar við, er Jesús nálgaðist Jeríkó, að blindur maður sat þar við veginn og betlaði. 36Hann heyrði að mannfjöldi gekk hjá og spurði hvað um væri að vera.
37Var honum sagt að Jesús frá Nasaret færi hjá.
38Þá hrópaði hann: „Jesús, sonur Davíðs, miskunna þú mér!“
39En þeir sem á undan fóru höstuðu á hann að hann þegði. En hann hrópaði því meir: „Sonur Davíðs, miskunna þú mér!“
40Jesús nam staðar og bauð að leiða hann til sín. Er hann kom nær spurði Jesús hann: 41„Hvað vilt þú að ég geri fyrir þig?“
Hinn svaraði: „Drottinn, að ég fái aftur sjón.“
42Jesús sagði við hann: „Fá þú aftur sjónina. Trú þín hefur bjargað þér.“
43Jafnskjótt fékk hann sjónina. Og hann fylgdi honum og lofaði Guð. En allt fólkið, er sá þetta, vegsamaði Guð.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy