YouVersion Logo
Search Icon

Jóhannesarguðspjall 2

2
Fyrsta táknið
1Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar. 2Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans. 3En er vín þraut segir móðir Jesú við hann: „Þeir hafa ekki vín.“
4Jesús svarar: „Hvað viltu mér, kona? Minn tími er ekki enn kominn.“
5Móðir hans sagði þá við þjónana: „Allt það sem hann segir ykkur, það skuluð þið gera.“
6Nú voru þar sex vatnsker úr steini samkvæmt reglum Gyðinga um hreinsun og tók hvert þeirra tvo mæla eða þrjá.#2.6 Á grísku metretes, lagarmál 39,39 lítrar, tveir eða þrír mælar þannig um 100 lítrar. 7Jesús segir við þá: „Fyllið kerin vatni.“ Þeir fylltu þau á barma. 8Síðan segir hann: „Ausið nú af og færið veislustjóra.“ Þeir gerðu svo. 9Veislustjóri bragðaði vatnið, sem var orðið vín, og vissi ekki hvaðan það var en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það. Þá kallaði veislustjóri á brúðgumann 10og sagði: „Allir menn bera fyrst fram góða vínið og síðan hið lakara er menn gerast ölvaðir. Þú hefur geymt góða vínið þar til nú.“
11Þetta fyrsta tákn sitt gerði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði dýrð sína og lærisveinar hans trúðu á hann.
12Eftir þetta fór hann ofan til Kapernaúm ásamt móður sinni, bræðrum og lærisveinum. Þar voru þau nokkra daga.
Jesús, nýtt musteri
13Nú fóru páskar Gyðinga í hönd og Jesús hélt upp til Jerúsalem. 14Þar sá hann í helgidóminum þá er seldu naut, sauði og dúfur og víxlarana sem sátu þar. 15Þá gerði hann sér svipu úr köðlum og rak alla út úr helgidóminum, líka sauðina og nautin. Hann steypti niður peningum víxlaranna og hratt um borðum þeirra 16og við dúfnasalana sagði hann: „Burt með þetta héðan. Gerið ekki hús föður míns að sölubúð.“ 17Lærisveinum hans kom í hug að ritað er: „Vandlæting vegna húss þíns mun tæra mig upp.“
18Ráðamenn Gyðinga#2.18Orðrétt: Gyðingar sögðu þá við hann: „Hvaða tákn getur þú sýnt okkur um það að þú megir gera þetta?“
19Jesús svaraði þeim: „Brjótið þetta musteri og ég skal reisa það á þrem dögum.“
20Þá sögðu þeir:#2.20 Orðrétt: Gyðingar. „Þetta musteri hefur verið fjörutíu og sex ár í smíðum og þú ætlar að reisa það á þrem dögum!“
21En Jesús var að tala um musteri líkama síns. 22Þegar hann var risinn upp frá dauðum minntust lærisveinar hans að hann hafði sagt þetta, og þeir trúðu ritningunni og orðinu sem Jesús hafði talað.
23Meðan hann var í Jerúsalem á páskahátíðinni fóru margir að trúa á hann því þeir sáu þau tákn sem hann gerði. 24En Jesús gaf þeim ekki trúnað sinn því hann þekkti alla. 25Hann þurfti þess ekki að neinn bæri öðrum manni vitni. Hann vissi sjálfur hvað í manni býr.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy