YouVersion Logo
Search Icon

Jesaja 4

4
1Sjö konur munu þrífa í sama mann á þeim degi
og segja: „Vér skulum sjálfar fæða oss og klæða,
leyf oss aðeins að bera nafn þitt,
tak smánina frá oss.“
Hin nýja Jerúsalem
2Á þeim degi verður kvistur Drottins fagur og vegsamlegur og ávöxtur landsins stolt og vegsemd þeirra í Ísrael sem af komast.
3Þeir sem af lifa á Síon og þeir, sem eftir verða í Jerúsalem, verða nefndir heilagir, allir sem skráðir eru til lífsins í Jerúsalem.
4Þegar Drottinn hefur þvegið óhreinindin af Síonardætrum og skolað burt blóðið úr Jerúsalem með dóms- og hreinsunaranda, 5þá skapar Drottinn ský um daga og rjúkandi og bjartan eldsloga um nætur yfir öllu Síonarfjalli þeim sem þar safnast saman. Því að yfir allri dýrðinni verður hlíf. 6Laufþak mun veita forsælu í hita dagsins og hæli og skjól í stormi og regni.

Currently Selected:

Jesaja 4: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy