YouVersion Logo
Search Icon

Efesusbréfið 5

5
Börn ljóssins
1Verðið því eftirbreytendur Guðs svo sem elskuð börn hans. 2Lifið í kærleika eins og Kristur elskaði okkur og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir okkur svo sem fórnargjöf, Guði til þægilegs ilms.
3En frillulífi og óhreinleiki yfirleitt eða ágirnd á ekki einu sinni að nefnast á nafn meðal ykkar. Slíkt hæfir ekki heilögum. 4Ekki heldur svívirðilegt hjal eða ósæmandi spé. Þakkið miklu fremur Guði. 5Því að það skuluð þið vita og festa ykkur í minni að enginn frillulífismaður eða saurugur eða ágjarn − sem er sama og að dýrka hjáguði − á sér arfsvon í ríki Krists og Guðs.
6Látið engan tæla ykkur með marklausum orðum því að vegna þessa kemur reiði Guðs yfir þá sem hlýða honum ekki. 7Verðið þess vegna ekki lagsmenn þeirra. 8Eitt sinn voruð þið myrkur en nú eruð þið ljós í Drottni. Hegðið ykkur því eins og börn ljóssins. − 9Því að ávöxtur ljóssins er einskær góðvild, réttlæti og sannleikur. − 10Metið rétt hvað Drottni þóknast. 11Eigið engan hlut í verkum myrkursins, sem ekkert gott hlýst af, heldur flettið miklu fremur ofan af þeim. 12Því að það sem slíkir menn fremja í leyndum er jafnvel svívirðilegt um að tala. 13En allt það sem ljósið afhjúpar verður augljóst. 14Því að allt sem er augljóst er í ljósi. Því segir svo:
Vakna þú sem sefur
og rís upp frá dauðum
og þá mun Kristur lýsa þér.
15Hafið því nákvæma gát á hvernig þið breytið, ekki sem fávís heldur sem vís. 16Notið hverja stund því að dagarnir eru vondir. 17Verið því ekki óskynsöm heldur reynið að skilja hver sé vilji Drottins. 18Drekkið ykkur ekki drukkin af víni, það leiðir aðeins til spillingar. Fyllist heldur andanum 19og ávarpið hvert annað með sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóðum. Syngið og lofið Drottin af öllu hjarta 20og þakkið jafnan Guði, föðurnum, fyrir alla hluti í nafni Drottins vors Jesú Krists.
Skyldur hjóna
21Sýnið Kristi lotningu og hvert öðru auðsveipni: 22konurnar eiginmönnum sínum eins og Drottni. 23Því að maðurinn er höfuð konunnar eins og Kristur er höfuð og frelsari kirkjunnar, líkama síns. 24En eins og kirkjan lýtur Kristi, þannig lúti og konurnar eiginmönnum sínum í öllu.
25Karlmenn, elskið konur ykkar eins og Kristur elskaði kirkjuna og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir hana 26til þess að helga hana með orðinu og hreinsa hana í vatnslauginni. 27Hann vildi leiða kirkjuna fram fyrir sig í dýrð án þess hún hefði blett eða hrukku né neitt slíkt. Heilög skyldi hún og lýtalaus. 28Þannig skulu eiginmennirnir elska konur sínar eins og eigin líkami. Sá sem elskar konu sína elskar sjálfan sig. 29Enginn hefur nokkru sinni hatað eigið hold heldur elur hann það og annast eins og Kristur kirkjuna 30því við erum limir á líkama hans.
31„Þess vegna skal maður yfirgefa föður og móður og búa við eiginkonu sína og munu þau tvö verða einn maður.“ 32Þetta er mikill leyndardómur. Ég hef í huga Krist og kirkjuna. 33En sem sagt, hver og einn skal elska eiginkonu sína eins og sjálfan sig en konan beri lotningu fyrir manni sínum.

Currently Selected:

Efesusbréfið 5: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy