YouVersion Logo
Search Icon

Fimmta Mósebók 3

3
Óg konungur sigraður
1Þegar við snerum á leið upp til Basan kom Óg, konungur í Basan, ásamt öllum her sínum til að berjast við okkur hjá Edreí. 2Þá sagði Drottinn við mig: „Óttastu hann ekki. Ég hef selt hann, allan her hans og land í þínar hendur. Farðu með hann eins og þú fórst með Síhon, konung Amoríta, sem ríkti í Hesbon.“
3Drottinn, Guð okkar, seldi einnig Óg, konung í Basan, allan her hans og land okkur í hendur. Við sigruðum hann og létum engan komast undan. 4Þá tókum við allar borgir hans. Engin var sú borg að við næðum henni ekki frá þeim. Við tókum sextíu borgir, allt Argóbhérað, konungsríki Ógs í Basan. 5Allar þessar borgir voru víggirtar háum múrum, hliðum með tveimur vængjum og slagbröndum. Auk þeirra voru fjölmörg óvíggirt þorp. 6Við helguðum þessar borgir banni, fórum með þær eins og Síhon, konung í Hesbon, og helguðum jafnt karla, konur og börn banni 7en tókum allt búfé og ránsfenginn úr borgunum herfangi.
8Þá tókum við úr höndum beggja konunga Amoríta landið austan Jórdanar, frá Arnonfljóti að Hermonfjalli. 9Sídoningar nefna Hermon Sirjon en Ammónítar Senír. 10Við tókum allar borgirnar á hásléttunni, allt Gíleað, allt Basan allt til Salka og Edreí, allar borgir í konungsríki Ógs í Basan. 11En Óg, konungur í Basan, var einn eftir af Refaítum. Rúm hans var úr járni. Er það ekki í Rabba, höfuðborg Ammóníta? Það er níu álna langt og fjögurra álna breitt, mælt með venjulegu alinmáli. 12Þetta er landið sem við tókum til eignar. Ég fékk Rúben og Gað svæðið frá Aróer, sem er við Arnondalinn, ásamt hálfu Gíleaðfjalllendi og borgunum þar.
13Það sem eftir var af Gíleað og allt Basan, sem hafði verið hluti af konungsríki Ógs, allt Argóbhérað, fékk ég hálfum ættbálki Manasse. Allt Basan kallast land Refaíta.
14Jaír, sonur Manasse, tók Argóbhéraðið að landi Gesúríta og Maakatíta og gaf því nafn sitt, nefndi Basan Havót Jaír eins og það heitir enn í dag.
15Makír fékk ég Gíleað 16en afkomendum Rúbens og Gaðs fékk ég landið frá Gíleað og að Arnoná, miðjan dalinn og landið sem honum fylgdi, allt að Jabboká sem er á landamærum Ammóníta. 17Enn fremur fékk ég þeim Jórdanardal og Jórdan ásamt landinu umhverfis, frá Genesaretvatni#3.17 Hebr. Kinneret. að Arabavatni sem er salta vatnið#3.17 salta vatnið: Dauðahafið. undir Pisgahlíðum austan megin.
Landnám vestan við Jórdan undirbúið
18Eftirfarandi fyrirmæli gaf ég ykkur og sagði: „Drottinn, Guð ykkar, hefur fengið ykkur þetta land svo að þið takið það til eignar. Nú skuluð þið allir, sem vopnfærir eruð, halda tygjaðir til orrustu yfir Jórdan í fararbroddi bræðra ykkar, Ísraelsmanna. 19En konur ykkar, börn og fénaður − ég veit að þið eigið mikinn fénað − eiga að vera um kyrrt í borgunum sem ég hef gefið ykkur. 20Þegar Drottinn hefur veitt bræðrum ykkar hvíld eins og ykkur og þeir hafa einnig tekið landið til eignar sem Drottinn, Guð ykkar, gefur þeim handan við Jórdan, megið þið snúa aftur, hver til þess eignarlands sem ég hef gefið ykkur.“
21Þá gaf ég Jósúa svohljóðandi fyrirmæli: „Þú hefur séð með eigin augum allt það sem Drottinn, Guð ykkar, hefur gert þessum tveimur konungum. Það sama mun Drottinn gera öllum konungsríkjunum sem þú ferð til handan árinnar. 22Óttist þau ekki því að Drottinn, Guð ykkar, berst sjálfur fyrir ykkur.“
23Í sama mund bað ég Drottin um miskunn og sagði: 24„Drottinn Guð. Þú ert nú tekinn að sýna mér, þjóni þínum, mátt þinn og sterka hönd þína. Hver er sá guð, á himni eða jörðu, sem hefur unnið slíkar dáðir og máttarverk sem jafnast á við þín? 25Leyf mér að fara yfir ána og sjá landið góða handan Jórdanar, fjalllendið fagra og Líbanon.“
26En Drottinn hafði reiðst mér ykkar vegna og hann bænheyrði mig ekki. Drottinn sagði við mig: „Nóg um það. Nefndu þetta aldrei framar við mig. 27Farðu upp á Pisgatind og horfðu í vestur, norður, suður og austur og litastu um því að yfir Jórdan munt þú ekki komast. 28Skipaðu Jósúa foringja, stappaðu í hann stálinu því að hann skal fara fyrir þessu fólki yfir ána og skipta einnig landinu, sem þú færð að sjá, í erfðahluti milli þeirra.“ 29Dvöldumst við nú um hríð í dalnum gegnt Bet Peór.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy