YouVersion Logo
Search Icon

Síðara Þessaloníkubréf 1

1
Þakkir og fyrirbæn
1Páll, Silvanus og Tímóteus heilsa söfnuði Þessaloníkumanna í Guði, föður vorum, og Drottni Jesú Kristi.
2Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi.
3Skylt er okkur, bræður og systur,#1.3 Orðrétt: bræður. og maklegt að þakka Guði ætíð fyrir ykkur því að trú ykkar eykst stórum og kærleiki ykkar allra hvers til annars fer vaxandi. 4Því get ég miklast af ykkur í söfnuðum Guðs fyrir þolgæði ykkar og trú í öllum ofsóknum ykkar og þrengingum þeim er þið þolið.
5Þær birta réttlátan dóm Guðs og að hann muni meta ykkur makleg Guðs ríkis sem þið nú líðið illt fyrir. 6Guð er réttlátur, hann endurgeldur þeim þrengingu sem að ykkur þrengja 7en veitir ykkur, sem þrengingu líðið, hvíld ásamt mér þegar Drottinn Jesús opinberast af himni með máttugum englum sínum. 8Hann kemur í logandi eldi og hegnir þeim sem þekkja ekki Guð og þeim sem hlýða ekki fagnaðarerindinu um Drottin vorn Jesú. 9Þau munu sæta hegningu, eilífri glötun, fjarri augliti Drottins og fjarri dýrð hans og mætti. 10Þetta verður á þeim degi er Drottinn kemur til að opinbera sínum heilögu dýrð sína og vegsamast af öllum sem trú hafa tekið. Og þið eruð meðal þeirra sem trúað hafa þeim vitnisburði sem ég flutti ykkur.
11Þess vegna bið ég ávallt fyrir ykkur að Guð minn álíti ykkur makleg þess lífs sem hann kallaði ykkur til og veiti ykkur kraft til að framkvæma allt hið góða sem þið viljið og trú ykkar beinir ykkur til. 12Þannig verður nafn Drottins vors Jesú dýrlegt í ykkur og þið í honum fyrir náð Guðs vors og Drottins Jesú Krists.#1.12 Eða: Guðs vors, Drottins Jesú Krists.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy