YouVersion Logo
Search Icon

Síðari konungabók 20

20
Jesaja læknar Hiskía
1Um þessar mundir veiktist Hiskía og var að dauða kominn. Spámaðurinn Jesaja Amotsson kom þá til hans og sagði: „Svo segir Drottinn: Ráðstafaðu eigum þínum því að þú munt deyja, þú munt ekki halda lífi.“ 2Hiskía sneri sér þá til veggjar, bað til Drottins og sagði: 3„Minnstu þess nú, Drottinn, að ég hef breytt í trúfesti og af einlægni fyrir augliti þínu og gert það sem gott er í augum þínum.“ Og Hiskía grét ákaflega.
4En áður en Jesaja var kominn út úr miðforgarði hallarinnar kom orð Drottins til hans svohljóðandi: 5„Snúðu aftur og segðu við Hiskía, leiðtoga þjóðar minnar: Svo segir Drottinn, Guð Davíðs, forföður þíns: Ég hef heyrt bæn þína og ég hef séð tár þín. Ég mun lækna þig. Á þriðja degi skaltu ganga í musteri Drottins. 6Ég mun lengja ævi þína um fimmtán ár. Ég mun bjarga þér og þessari borg úr höndum Assýríukonungs og ég mun vernda þessa borg vegna sjálfs mín og vegna Davíðs, þjóns míns.“ 7Því næst sagði Jesaja: „Komið með fíkjudeig.“ Var það sótt og lagt við kýli konungs svo að hann læknaðist.
8Þá spurði Hiskía Jesaja: „Hvað er til marks um að Drottinn muni lækna mig svo að ég geti gengið í musteri Drottins á þriðja degi?“ 9Jesaja svaraði: „Þetta skaltu hafa til marks um að Drottinn muni gera það sem hann hefur heitið: Á skugginn að færast fram eða aftur um tíu stig?“ 10Hiskía svaraði: „Það er auðvelt fyrir skuggann að færa sig fram um tíu stig. Nei, hann á að færast aftur um tíu stig.“ 11Jesaja spámaður hrópaði þá til Drottins sem lét skuggann færast aftur um þau tíu stig sem hann hafði farið niður eftir þrepum Akasar.
Sendiboðar frá Babýlon
12Um þetta leyti sendi Merodak Baladan Baladansson, konungur í Babýlon, bréf og gjöf til Hiskía af því að hann hafði frétt af veikindum hans. 13Hiskía gladdist yfir þessu og sýndi sendiboðunum alla fjárhirslu sína, silfrið, gullið, balsamið og úrvalsolíuna, vopnabúr sitt og allt annað sem varðveitt var í fjárhirslu hans. Í höll hans eða ríki var enginn sá hlutur sem hann sýndi þeim ekki.
14Jesaja spámaður kom þá til Hiskía konungs og spurði: „Hvað vildu þessir menn og hvaðan komu þeir?“ Hiskía svaraði: „Þeir komu frá fjarlægu landi, alla leið frá Babýlon.“ 15Þá spurði Jesaja: „Hvað sáu þeir í húsi þínu?“ Hiskía svaraði: „Þeir sáu allt sem er í húsi mínu. Í fjárhirslum mínum er enginn sá hlutur sem ég sýndi þeim ekki.“ 16Þá sagði Jesaja við Hiskía: „Hlýddu á orð Drottins: 17Sá tími mun koma að allt, sem er í húsi þínu, og allt, sem forfeður þínir hafa safnað til þessa dags, verður flutt til Babýlonar. Ekkert verður eftir, segir Drottinn. 18Nokkrir af sonum þínum, niðjum þínum, sem þú átt eftir að eignast, verða teknir og gerðir að hirðsveinum í höll Babýloníukonungs.“ 19Hiskía svaraði Jesaja og sagði: „Gott er það orð sem þú hefur flutt mér frá Drottni.“ En hann hugsaði með sér: „Það verður þó friður og festa á meðan ég lifi.“
Hiskía deyr
20Það sem ósagt er af sögu Hiskía og afrekum hans, af tjörninni og vatnsleiðslunni, sem hann lét gera, og því hvernig hann lét leiða vatn inn í borgina, er skráð í annála Júdakonunga. 21Hiskía var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum. Manasse, sonur hans, varð konungur eftir hann.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy