1
Opinberunarbókin 14:13
Biblían (2007)
Og ég heyrði rödd af himni sem sagði: „Rita þú: Sælir eru dánir, þeir sem í Drottni deyja upp frá þessu. Já, segir andinn, þeir skulu fá hvíld frá erfiði sínu því að verk þeirra fylgja þeim.“
Compare
Explore Opinberunarbókin 14:13
2
Opinberunarbókin 14:12
Hér reynir á þolgæði hinna heilögu, þeirra er hlýða Guði og trúa á Jesú.
Explore Opinberunarbókin 14:12
3
Opinberunarbókin 14:7
og sagði hárri röddu: „Óttist Guð og gefið honum dýrðina. Stundin er komin er hann kveður upp dóm sinn. Tilbiðjið þann sem hefur gert himininn og jörðina og hafið og uppsprettur vatnanna.“
Explore Opinberunarbókin 14:7
4
Opinberunarbókin 14:9-11
Á eftir þeim kom þriðji engillinn og sagði hárri röddu: „Ef einhver tilbiður dýrið og líkneski þess og lætur setja merki þess á enni sér eða hönd, þá skal hann fá að drekka óblandað vín af reiðiskálum Guðs og hann mun verða kvalinn í eldi og brennisteini í augsýn heilagra engla og í augsýn lambsins. Og reykurinn frá kvalastað þeirra stígur upp um aldir alda og þeir sem tilbiðja dýrið og líkneski þess og hver sem ber merki þess mun enga ró hafa nótt og dag.“
Explore Opinberunarbókin 14:9-11
5
Opinberunarbókin 14:1
Enn sá ég sýn: Lambið stóð á Síonarfjalli og með því hundrað fjörutíu og fjórar þúsundir sem höfðu nafn þess og nafn föður þess skrifað á enni sér.
Explore Opinberunarbókin 14:1
6
Opinberunarbókin 14:6
Og ég sá annan engil fljúga um háhvolf himins. Hann hélt á eilífum fagnaðarboðskap til að boða þeim sem á jörðunni búa og sérhverri þjóð og kynkvísl, tungu og lýð
Explore Opinberunarbókin 14:6
7
Opinberunarbókin 14:8
Annar engill kom á eftir honum og sagði: „Fallin er, fallin er Babýlon hin mikla sem byrlað hefur öllum þjóðum af lostavíni saurlífis síns.“
Explore Opinberunarbókin 14:8
YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy
Home
Bible
Plans
Videos