YouVersion Logo
Search Icon

Jóhannesarguðspjall 3

3
Jesús og Nikódemus
1Maður hét Nikódemus, af flokki farísea, og átti sæti í öldungaráði Gyðinga. 2Hann kom til Jesú um nótt og sagði við hann: „Rabbí, við vitum að þú ert lærifaðir kominn frá Guði. Enginn getur gert þessi tákn sem þú gerir nema Guð sé með honum.“
3Jesús svaraði honum: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki nema hann fæðist að nýju.“#3.3 Eða: að ofan.
4Nikódemus segir við hann: „Hvernig getur maður fæðst þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?“
5Jesús svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki nema hann fæðist af vatni og anda. 6Það sem af manni fæðist er manns barn en það sem fæðist af anda Guðs er Guðs barn. 7Undrast eigi að ég segi við þig: Ykkur ber að fæðast að nýju. 8Vindurinn blæs þar sem hann vill og þú heyrir þyt hans. Samt veistu ekki hvaðan hann kemur né hvert hann fer. Svo er um þann sem af andanum er fæddur.“
9Þá spurði Nikódemus: „Hvernig má þetta verða?“
10Jesús svaraði honum: „Þú ert lærifaðir í Ísrael og veist þetta ekki? 11Sannlega, sannlega segi ég þér: Vér tölum um það sem vér þekkjum og vitnum um það sem vér höfum séð en þér takið ekki á móti vitnisburði vorum. 12Ef þér trúið eigi þegar ég ræði við yður jarðnesk efni, hvernig skylduð þér þá trúa er ég ræði við yður um hin himnesku? 13Enginn hefur stigið upp til himins nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn.
14Og eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn 15svo að hann veiti hverjum sem trúir á hann eilíft líf. 16Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. 17Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn heldur til þess að frelsa hann.
18Sá sem trúir á son Guðs dæmist ekki. Sá sem trúir ekki er þegar dæmdur því að hann hefur ekki trúað á nafn Guðs sonarins eina. 19En þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn en menn elskuðu myrkrið fremur en ljósið því að verk þeirra voru vond. 20Hver sem illt gerir hatar ljósið og kemur ekki til ljóssins svo að verk hans verði ekki uppvís. 21En sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins svo að augljóst verði að verk hans eru í Guði gerð.“
Hann á að vaxa
22Eftir þetta fóru Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði. 23Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt Salím en þar var mikið vatn. Menn komu þangað og létu skírast. 24Þá var ekki enn búið að varpa Jóhannesi í fangelsi.
25Nú varð deila um hreinsun milli lærisveina Jóhannesar og Gyðings eins. 26Þeir komu til Jóhannesar og sögðu við hann: „Rabbí, sá sem var hjá þér handan Jórdanar og þú barst vitni um, hann er að skíra og allir koma til hans.“
27Jóhannes svaraði þeim: „Enginn getur tekið neitt nema Guð gefi honum það. 28Þið getið sjálfir vitnað um að ég sagði: Ég er ekki Kristur heldur er ég sendur á undan honum. 29Sá er brúðguminn sem á brúðina en vinur brúðgumans, sem stendur hjá og hlýðir á hann, gleðst mjög við rödd hans. Þessi gleði er nú mín að fullu. 30Hann á að vaxa en ég að minnka.“
Sá sem kemur að ofan
31Sá sem kemur að ofan er yfir öllum. Sá sem er af jörðu, hann er af jörðu og talar eins og menn. Sá sem kemur af himni er yfir öllum og 32vitnar um það sem hann hefur séð og heyrt og enginn tekur á móti vitnisburði hans. 33En sá sem hefur tekið á móti vitnisburði hans hefur staðfest að Guð sé sannorður. 34Sá sem Guð sendi talar Guðs orð því ómælt gefur Guð andann. 35Faðirinn elskar soninn og hefur lagt allt í hönd honum. 36Sá sem trúir á soninn hefur eilíft líf en sá sem óhlýðnast syninum mun ekki öðlast líf heldur varir reiði Guðs yfir honum.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy